Þetta var annars bara fyndið. Alltaf gaman á grímuballi og svona. Ég var mest svekkt yfir því að rektor háskólans tók ekki svosem eins og eitt sirkusatriði með veldissprotanum góða.
Það var líka mjög gaman að fá doktorsgráðu frá Kólumbíu um leið og Eric Lander. Reyndar var hans gráða heiðursgráða, en hvað er það á milli vina....
Ég er í Tel Aviv. Eða réttara sagt í Rehovet. Ég sit á hótelherbergi á Weizmann vísindastofnuninni og blogga rétt fyrir svefninn. Ég lenti klukkan ellefu í gærkveldi og var mætt í viðtal fyrir EMBO póstdokkastyrk klukkan tíu.
Ég varði svo seinnipartinum í Jaffa, þar sem ég borðaði falafel og lambabuff sötraði hvítvín og horfði yfir Miðjarðarhafið. Það var gaman að horfa á sjóbretta og kayakiðkendur spreyta sig á öldunum og hafgolan var þægileg. Það var gott að finna lyktina af sjónum aftur.
Á morgun liggur svo leiðin til New York. Það er útskrift á þriðjudaginn og Mörður, Ásta, Pabbi og Herdís mæta til að samfagna mér. Það verður partí hjá Josh á miðvikudaginn með föstum liðum eins og venjulega. Svo fljúgum við til London á fimmtudagskvöldið og ég mæti í vinnuna á föstudaginn...
Never a dead moment.