Sunnudagur, 25 maí, 2008
Commencement
Convocation

Það var haldin útskrift með pompi og pragt í Kólumbíuháskóla í vikunni. Tjúllað stuð náttúrulega. Og nú erum við Mo komin til baka í rigninguna á Englandi. Bara næs. Hér til hliðar erum við pabbi á góðri stund.

Þetta var annars bara fyndið. Alltaf gaman á grímuballi og svona. Ég var mest svekkt yfir því að rektor háskólans tók ekki svosem eins og eitt sirkusatriði með veldissprotanum góða.

Það var líka mjög gaman að fá doktorsgráðu frá Kólumbíu um leið og Eric Lander. Reyndar var hans gráða heiðursgráða, en hvað er það á milli vina....

Posted by erna at 12:30 EH