Landbúnaðarbensín hefur, að mínu mati fleiri galla en bensín unnið úr jarðolíu. Hér eru meðal annars nokkrir gallar:
1. Það kostar fleiri kaloríur að framleiða landbúnaðarbensín en eru í bensíninu sjálfu.
2. Með því að beina bílaflotanum inn á að nota etanól sem aflgjafa aukum við eftirspurnina eftir etanóli. Það sem þá gerist og hefur þegar gerst í heiminum er að eftirspurn eftir etanóli eykst og þarmeð eykst eftirspurnin eftir landbúnaðarafurðum til þess að vinna úr etanól. Þetta veldur hækkun á matvælaverði og hungursneyðum.
3. Mengun eykst, sérstaklega af því að meirihluti landbúnaðarbensíns er framleitt á óvistvænan hátt með því að nota stórvirkar vinnuvélar og mikið magn af tilbúnum áburði.
Og ekki segja mér að þetta sé allt í lagi, við verðum bara að nota lífrænt ræktað landbúnaðarbensín. Með því að nota landbúnaðarbensín, sama hvaðan það kemur veldur aukinni eftirspurn eftir því með ofangreindum afleiðingum.
Hvernig væri að draga fram hjólið?
Ég ætla héðan í frá að kalla "biofuel" landbúnaðarbensín á íslensku. Finnst það lýsa fyrirbærinu betur en enska orðið.