Fimmtudagur, 10 apríl, 2008
Þú veist að þú lifir sorglegu lífi...

... ef þú hefur ekkert betra að gera en að kvarta yfir því að einhver breyti stillingunni á skrifstufustólnum þínum þegar þú ert ekki í vinnunni. Ég mæli með því að þú skiptir um vinnu eða gerir eitthvað innspírerandi til að losa um alla innbyggðu frústrasjónirnar...

Posted by erna at 11:47 EH
Stuð

Það er svo gaman í vinnunni í dag að ég er að kabbna. Ég er með fiðring í maganum, hannandi nýjar tilraunir hægri, vinstri.

Krakkarnir á labbinu hjá mér eru svo klárir að það er ótrúlegt. Og það er svo gaman að breinstorma með þeim. Ég elska labbið mitt jafnmikið og mér leiðist Cambridge.

Posted by erna at 02:44 EH
Ísland og vísindi

Ég var að setja inn athugasemd hjá Arnari Pálsyni, sem heldur út ansi fínu bloggi um vísindi. Við það að skrifa athugasemdina fattaði ég að ættti kannski frekar að setja meginþorra hennar hér inn.

Ég verð eiginilega að segja að ég er búin að gefast upp á Íslandi á öllum sviðum vísinda. Ég býst ekki neitt frekar við því að það sé stunduð gagrýnin vísindafréttamennska á Íslandi og ekki heldur að það verði nokkurn tíman veitt almennilegum styrkjum til grunnrannsókna á Ísland. Það er ekki hægt að ætlast til þess af svo lítilli þjóð að vinna á sama level og tugmilljónaþjóðir.

Til dæmis fékk ég tölvupóst í gær þar sem auglýst var eftir hugmyndum að öndvegissetrum. Þessi öndvegissetur hafa verið í vinnslu á Íslandi undanfarið ef marka má bloggumræðuna.

Ég varð náttúrulega spennt og las lengra, en brosið rann fljótt af mér. Það á að veita nokkrum hópum milljón í styrk til nokkurra mánaða hugmyndaþróun. Milljón! Já, ég sagði milljón!

Hverjum er hægt að borga laun í nokkra mánuði af einnar milljón króna styrk? Jú hámenntuðum vísindamanni, sennilega einhverjum með sirka áratug af hálskólamenntun og annan áratug af reynslu við rannsóknarvinnu.

Og svo þarf að borga efnivið. Milljón myndi ekki einu sinni duga mér í nokkra mánuði bara fyrir efnivið í vinnu til hugmyndaþróunar. Sumsé alger brandari.

Ég strokaði út tölvupóstinn. Ég er algerlega búin að gefa upp á bátinn að ég muni nokkurn tíman starfa á Íslandi sem vísindamaður. Annað hvort flyt ég heim (vonandi ekki) og byrja að flippa hamborgurum eða held áfram að búa erlendis (vonandi) og vinn sem vísindamaður.

Posted by erna at 09:35 FH