Laugardagur, 5 apríl, 2008
Vörubílstjórar...

... nei, djók. Ég ætla ekki að blogga um vörubílstjóra, læt restina af bloggheimum um það.

Það er ekkert í gangi frekar en venjulega. Laugardagur, ég er á labbinu ásamt flestum labbfélaganna. Við ætlum nokkur út að borða saman í kvöld og svo í þrítugsafmæli. Ég reyndar hef ekki hugmynd um hver það er sem býður í partí, en partí er partí og maður mætir náttla!

Það er reyndar frekar fyndið að partíið er næstum því úti í bæ sem heitir Cherry Hinton, þannig að það er alveg korters labb þangað. Flestir labbfélaganna voru til í að mæta þartil þeir heyrðu hvar teitin væri haldin. Þá ráku flestir upp sársaukaóp og kváðust ekki nenna alla leið þangað. Þetta var hreinlega eins og að bjóða Manhattanbúa í partý í Brooklyn eða Reykvíkingi í partý í Keflavík. Frekar skondið, ég gerði stólpagrín að liðinu og benti þeim á að þetta væru fimm mínútur í leigubíl. Það er skondið hvað vegalengdir lengjast og styttast í huga fólks í hlutfalli við stærð bæjarins sem það býr í.

Á morgun ætla ég svo að hitta kærasta vinkonu minnar í London en hann flýgur hingað frá New York á morgun til að fara í atvinnuviðtal og ég ætla að snæða með honum kvöldverð.

Posted by erna at 06:56 EH