Mig langar til þess að benda á það að með skilgreiningu kirkjunnar á fósturvísi sem manneskju er hún að fótumtroða vilja kvenna.
Nú? Já, fósturVÍSIR getur ekki orðið að manneskju nema til sé sú kona sem vill ljá fósturvísinum leg sitt og bera fóstrið í gegnum fulla meðgöngu. Þess vegna eru menn sem eru á móti fóstureyðingum og á móti nýtingu fósturvísa til rannsókna á sama tíma að virða vilja kvenna að vettugi.
Ég fagna því að samþykkt hafa verið lög á Alþingi um stofnfrumurannsóknir á Íslandi, því slíkum rannsóknum þarf að búa viðeigandi lagaumhverfi.
Á sama tíma óska ég þess að Alþingi hefði frumkvæði að því að aðskilja ríki og kirkju, enda ekki hægt að nútímaþjóð hafi slíkt húmbúkk sem þessa ríkiskirkju sem hluta sinna stofnana.