Oh.... vísindin eru stundum frústrerandi!!!! Í augnablikinu er eitthvert óþolandi kanamycin þolið plasmíð búið að taka sér bólfestu í einhverri lausnanna minna, en ég finn ekki hvar það er. Er búin að testa pöddurnar (þ.e. rafþolnu saurgerlana sem ég nota til að klóna), SOC ætið, böfferana í gelhreinsunarkittinu, vatnið og böfferana í "ligation" kittinu. En allt kemur fyrir ekki. Í gær var ég að framkvæma söbbklónun með Amp-þolnum vectorum og skellti dótinu á Kan plötur til að athuga hvort ég væri enn með mengun eftir að skipta um alla böffera og viti menn, ég fékk þessar fínu kólóníur. URRRRRRRRRRR......
Það eina sem ég á eftir að prófa eru LB-kan plöturnar, en ég hef mjög litla trú á því að við þær sé að sakast þar sem þær eru búnar til af góðu konunum í ætishópnum (úff, þetta þýðist ekkert voðalega vel) og það væru sennilega fleiri búnir að lenda í sama veseni ef við þær væri að sakast þar sem allir starfsmenn stofnunarinnar nota plötur frá þeim þegar þeir þurfa að klóna.
Stundum langar mig mest bara að gerast uppvaskari. Gallinn við það er að ég þyrfti að fara að gera það sem aðrir segja mér að gera. Það á ekkert voðalega vel við mig að láta stjórna mér. Mér finnst skemmtilegra að stjórna sjálf.
(Sorrý, hef ekki neitt skemmtilegt að segja. Ég á mér ekkert líf þessa dagana. Ágætt að fá útrás fyrir klónunarfrúst á blogginu. Kannski ég taki út smá FedEx frúst líka, en ekki í dag).
Ég var að fá "council tax" áætlun fyrir næsta ár. Samkvæmt þessu yfirliti er íbúðin sem ég bý í metin á tæpar níuhundruð þúsund krónur á fermetrann (miðað við gengi föstudagsins 14. mars). Ó, boj, við þurfum greinilega að vinna í lottó ef við ætlum nokkurntíman að kaupa fasteign.
Ég er opinberlega hætt að hlusta á kvart frá Íslandi varðandi fasteignamarkaðinn. Í Reykjavík eru laun yfirleitt hærri og fasteingaverð lægra en í þessu krummaskuði sem ég bý í....