Jæja, ég sit hérna heima og pússla saman power-point skjali fyrir labbfund morgundagsins. Borða pakkapizzu og hlusta á Bylgjuna í græjunum. Hemmi Gunn rúlar!
Er komin niður á jörðina aftur eftir að hafa fengið tilvitnunina í gær. Ég er greinilega enn bara svona trámatíseruð eftir að hafa verði skúbbað með þessa vinnu að mér leið eins og enginn myndi lesa greinina mína. Samt birtist hún í fínu tímariti og allt, en áður en ég fékk nokkra tilvitnun leið mér eins og enginn hefði lesið stykkið... Svona er maður nú lítill í sér....