Miðvikudagur 13. febrúar 2008.
Vaknaði klukkan hálfátta og dreif mig á lappir. Lallaði yfir í eldhús og setti yfir kaffi á espresso könnunni. Fór í sturtu meðan kaffið mallaði. Kveikti á útvarpinu (BBC4), klæddi mig, borðaði jógúrt með múslí og tékkaði á tölvupóstinum mínum. Svaraði pósti frá kollega í Taívan sem ætlar að senda mér plasmíð. Sötraði kaffi á meðan ég blés á mér hárið og setti upp andlit. Þetta er föst morgunrútína sem tekur mig um það bil klukkutíma. Hjólaði svo í hendingskasti í vinnuna.
Var mætt rétt fyrir níu. Settist niður og skipulagði daginn, setti up "task-list" í Thunderbird Lightning. Gaf frumunum mínum æti. Varði tveimur tímum við að taka smásjármyndir af "immunofluorescence" lituðum frumum frá því fyrir helgi. Konstructið mitt virkar! Einhver vinna undanfarinna vikna er sumsé farin að skila sér. Sendi tvö önnur konstruct í raðgreiningu.
Hópurinn fór í hádegismat um hálfeitt. Borðaði nýrnabaunachilli og rósakál þriðja daginn í röð. Maturinn í mötuneytinu er frekar óspennandi og ekki getur maður borðað bara sallat í hádeginu!
Varði svo seinniparti dags í að skrifa styrkumsókn til EMBO fyrir launum næstu tveggja ára. Veit ekki alveg hvort ég vona að ég fái þennan styrk því hann borgar verr en þau lúsarlaun sem ég er á í dag.
Strauk út tveimur bakteríuræktum á agarskálar um fimmleytið og fór svo niður á kaffistofu og keypti mér túnfiskssamloku úr sjálfsalanum ásamt einni dós af Coke-Zero. Minna en ein kaloría, alla vega í kókinu... Las Times á meðan ég gleypti í mig lokuna og fór svo aftur upp að skrifa. Fattaði klukkan ellefu að ég þyrfti að drífa mig heim, "skrifaði" í klukkutíma í viðbót. Leit í kringum mig og áttaði mig á að átta af sextán meðlimum rannsóknarstofunnar voru önnumkafnir við störf í kringum mig. Hjólaði heim og fékk mér ristað brauð á meðan ég horfði á matreiðsluþátt í sjónvarpinu. Þar var einhver kráareigandinn að elda "faggots" en það ku vera kjötbollur hér á landi. Fór að sofa klukkan eitt.
Þriðjudagur 14. febrúar 2008.
Vaknaði ekki fyrr en klukkan hálfníu. Rauk fram úr og skolaði á mér hárið eftir að hafa sett yfir kaffi. Borðaði jógúrt með múslí og hlustaði á útvarpið á meðan (Rás 2). Klæddi mig í föt, setti á mig maskara, drakk kaffi í sömu andránni og hjólaði á labbið. Þaðan gekk ég sem leið lá í fundarsal niðri í bæ. Varði deginum við að hlusta á fimmtán fyrirlestra frá labbinu okkar og tveggja annarra stofnfrumulabba. Þetta var alger "crash course" í stofnfrumufræðum fyrir mig og ég lærði margt.
Klukkan hálfsjö var boðið upp á vín og snittur. Dembdi í mig einu glasi og spjallaði við einn hópstrjóranna og nokkra krakka á labbinu hans. Rauk svo á labbið klukkan sjö til þess að hugsa um frumurnar mínar. Og nú sit ég hér klukkan hálfellefu og nenni ekki að hjóla heim. Og hvað gerir fólk sem á ekkert líf í því? Jú, það bloggar.