Miðvikudagur, 6 febrúar, 2008
Ísland er krútt

Það er ekki hægt annað en brosa út í annað þegar maður opnar mbl.is og sér fyrirsagnirnar:

"Kindur í sjálfheldu síðan í haust." og "Tveir eldsvoðar samtímis í Reykjavík."

Frekar krúttlegt fréttamat.

Posted by erna at 05:34 EH
Ég er líka að breyta Englandi...

... kannski ekki á dramatískan hátt, en í vikunni mættu þrír vinnufélaganna með hrökkbrauð í nesti. Ég fæ mér alltaf hrökkbrauð með smurosti og ávöxt (og te!) milli fimm og sex til þess að hafa orku í síðustu vinnustundirnar (nema núna er ég farin að vakna svo snemma að ég er búin að vinna klukkan hálf sjö-sjö flest kvöld!!!). Og fólki fannst þetta greinilega svona nett.

Ég er að breyta liðinu í Skandinava.

Posted by erna at 12:00 FH