Ég er búin að vera á dýrameðhöndlunarnámskeiði alla vikuna. Í dag var ég látin skera upp dauða rottu, sauma saman á honum sáðrásina og klippa og sauma saman blessað dýrið aftur. Ég var reyndar líka látin aflífa rottuna áður. Því samkvæmt breskum lögum má ég aflífa rottu með of stórum skammti af svæfingarlyfi, en ég þarf að hafa sérstakt leyfi til að gera aðgerð á lifandi rottu. Því þurfti ég að deyða hana áður.
Ég hef aldrei unnið með rottur áður, bara mýs. Það var pínu gaman á mánudaginn að meðhöndla rottur í fyrsta skipti í langan tím (hef bara einu sinni áður haldið á rottu og það var fyrir fimm árum). Þær eru alger krútt! Og þær voru ekkert smá gæfar, klifruðu upp á axlirnar á okkur og kúrðu í olnbogabótum okkar þannig að við gátum bara klappað þeim og gælt við þær. Mig grunar hins vegar að rotturnar sem við drápum í dag hafi verið þær sem við gældum við á mánudagin....
Tjáh.. hér sit ég klukkan hálftólf á mánudagsmorgni og reyni að rifja upp hvað ég gerði um helgina....
Laugardagur: Vaknaði klukkan níu við það að það var hringt dyrabjöllunni hjá mér.... ehm.. hehe... OK, svona að öllu djóki slepptu, þá var ég vakin af holdvotum blómasendli á laugardagsmorguninn. Hann færði mér 18 rauðar rósir frá bóndanum í tilefni afmælisins (29E) á fimmtudaginn. Ég hangsaði heillengi yfir morgunmatnum, að ekki sé minnst á yfir kaffinu og konfektinu sem kom með blómunum og fór svo í vinnuna um hádegisbilið. Það var hellirigning og ég náði að verða holdvot á þeim fimm mínútum sem það tekur mig að hjóla í vinnuna. Ég var í vinnunni til klukkan að verða átta, skellti mér þá í gymmið í klukkutíma og svo heim að borða kvöldmat, spjallaði aðeins við Dísu Tæger og fór snemma að sofa.
Í dag fór ég svo aftur á fætur klukkan níu og þvoði þvott og keypti inn, kláraði bókina sem ég er að lesa og fór í vinnuna klukkan tvö, í þetta skiptið í þurru. Ég var að lesa bókina Olycksflageln eftir Camillu Lackberg. Ég mæli ekkert sérstaklega með henni. Pínu spennó, en frekar fyrirsjáanleg og mjög grunn og staðalmyndakennd persónusköpun. Samt fín til að æfa sig í sænsku. Ég skreið heim um níu og eldaði mér plokkfisk og er núna að fresta háttatíma með því að skrifa langdregna bloggfærslu.
Ég hangsa hérna heima þessa stundina. Ég fékk bréf frá leigumiðluninni um daginn þar sem mér var tilkynnt að þau myndu mæta heim til mín og tékka á ástandi íbúðarinnar. Þau ætla að koma fyrir klukkan eitt, og tilkynntu mér náðarsamlegast að þau myndu hleypa sér inn með aukalykli ef ég væri ekki heima, takk fyrir.
Ég er ekki hissa á því að Bretar komi illa út miðað við önnur lönd hvað varðar persónuvernd. Það eru eftirlitsmyndavélar nánast allst staðar, og það þarf endalaust að vera að fylgjast með að maður fylgi settum reglum. Og það er ekki lítið af reglum hér...
Og svo má bara mæta heim til manns með aukalykil í farteskinu. Ameríka er kannski ekki fullkomin, en ekki einu sinni húsvörðurinn minn þar hafði leyfi til að fara inn til mín nema ég væri viðstödd.. Ég sakna BNA.
... af því að jólagjafirnar sem ég sendi fyrir jól eru ekki enn komnar til Íslands. Góða skíta póstþjónustan segi ég nú bara. En breski pósturinn er víst svona óáreiðanlegur. Og ég sem hélt að sá amríski væri slæmur...
Það er brjálað stuð á labbinu. Fósturvísastofnfrumurnar mínar dafna alveg einstaklega vel og klónunin er hafin á milljón. Þrjár mismunandi söbbklónanir í dag, hvorki meira né minna...
Það að eiga fósturvísastofnfrumur í krukku inni í skáp er svipað og að vera bóndi. Það þarf nefnilega að gefa á hverjum einasta degi. Ólíkt kindum og rollum tvöfaldast fjöldi frumanna á hverjum degi, þannig að þeim þarf að dreifa í fleiri diska annan hvern dag. Spurning hvort maður komi sér ekki upp kúabúi svona meðfram, fyrst maður er bundinn í bænum alla daga hvort sem er....
Þessi færsla verður aðeins skemmtilegri en fyrirrennarinn. Listi yfir frumuræktir er algerlega í takt við það hvað ég er eiginlega í litlu stuði til að skrifa hvað er raunverulega að gerast í mínu lífi hér inn. Og þið fáið bara frumulista í staðin fyrir allt djúsí gúmmelaðið sem er í gangi hjá mér (not!).
Ég eyði flestum vökustundum í vinnunni. Hef reyndar horft á einn þátt af bandarísku útgáfu "The Office" á hverju kvöldi áður en ég fer að sofa. Það eru frístundirnar þessa dagana. Þetta eru reyndar snilldarþættir, kom algerlega á óvart. Þeim tekst að gera þá fyndna á mjög amerískan hátt.
Reyndar er ég að ljúga. Ég les líka í hálftíma áður en ég fer að sofa á hverju kvöldi. Ég er að lesa sænskan reyfara sem heitir Olycksfageln eftir Camillu Lackberg. Alveg fínasta lesning til að sofna yfir! Kannski ekki besti dómur um reyfara, en hvað um það.
Í dag kom mamma svo í heimsókn og við áttum alveg frábæran dag saman trítlandi um Cambridge. Hrafnkell kom svo um kvöldið og við borðuðum ítalskan kvöldmat. Ekki slæmt.
Ég endaði daginn á að fara á labbið klukkan tíu og vinna í klukkutíma. Klukkan ellefu mætti svo einn doktorsnemanna á labbið og við töluðum um vísindi í tvo klukkutíma án þess að vita hvað af tímanum liði. Eins gott að drífa sig í rúmið því að í fyrramálið ætlar hann að hjálpa mér að fara með gömul IKEA húsgögn í endurvinnslu.
Ég er í stuði. Gleðifréttir dagsins: Fósturvísastofnfrumurnar sem ég er að rækta dafna eins og blómi í eggi. Þær líta allt öðruvísi út en allar aðrar frumur sem ég hef ræktað.
Frumur sem ég hef ræktað: (íslenska innan sviga þar sem ég kann hana).
Primary (beint úr músum/mönnum):
B-frumur
Dendritic frumur (griplufrumur)
Macrofagar (stórar átfrumur)
Dermal fibroblast
Epidermal keratinocytes
Bonemarrow stromal cells
NHEKs (Normal Human Epidermal Keratinocytes)
Mouse Embryonic Fibroblasts kallaðar PEF frumur hér á bæ, MEFs annars staðar.
Embryonic Stem Cells (fósturvísastofnfrumur)
Transformeraðar frumulínur:
HaCaT
293
293T
RKO
3T3s (reyndar er ég ekki viss hvort 3T3 frumur séu transformeraðar)
WI-L2
P3X
18-81
EL4
M12
Athugið að þetta er ekki tæmandi listi!
Og hana nú.
Mér finnst íslenska orðið frumur flottara en enska orðið cell.
Erna nörri.
Ég horfði á áhugaverðan þátt á BBC í fyrradag. Hann heitir: "What Britain Earns" og fjallaði um hvaða laun fólk sem stundar hin ýmsu störf hér í landi hefur.
Ég er á svipuðum launum og pípulagningarmenn sem vinna 40 stunda vinnuviku. Sem er kannski ekki slæmt. Nema ég vinn meira svona 60-80 tíma á viku og er með 9 ára háskólanám að baki. Og 65% af laununum mínum fara í húsaleigu af því ég bý í einum dýrasta bæ Englands. Stofnunin (þ.e. Cambridge háskóli) sem ég vinn fyrir telur sig ekki þurfa að borga mér mannsæmandi laun af því að ég á að vera svo þakklát fyrir það eitt að fá að vinna hér.
Stundum held ég að ég sé haldin sjálfspíningarhvöt.
Ég er enn kvefuð. Bölvaður kverkaskítur alltaf hreint. Ég sef ekki á nóttunni vegna öndunarerfiðleika, dregst í vinnuna milli tíu og ellefu og skríð svo heim tólf tímum síðar. Þetta er ekki hægt. Þá er nú betra að vinna frá átta til átta.
En ég tek mér frí mestallan laugardaginn, því mamma og Hrafnkell ætla að kíkja á mig. Það verður nú ágætt.
Gleðifréttir dagsins: Ég fékk gefins plasmíð sem hefði kostað mig 50 þúsund krónur að kaupa. Ergó, ég get snúið upp á handlegginn á foringjanum og fengið hann til þess að kaupa vírus konstruct fyrir peninginn sem ég sparaði.
Bömmer dagsins: Ég er kvefuð og slöpp. Meira að segja svo slöpp að ég hef litla sem enga matarlyst. Mig rekur ekki minni til þess að ég hafi nokkurn tíman áður misst matarlystina.
Á maður að þora að viðurkenna að það sé árið 2008. Að það séu átta ár síðan tvöþúsundvandinn var aðalumræðuefnið um áramótin?
Og gvuð, ég er svo leiðinleg, eiginlega bara boooorrrring af því að ég fer strax að hugsa um hvað við vitum núna um líffræði sem við vissum ekki þá (æl).
Ég ætlaði að skrifa eitthvað voða fönkí áramótaávarp með smá upprifjun, en svo nennti ég því ekki... Ég þyrfti eiginlega að fara að uppfæra þessa síðu og gera hana aðeins nútímalegri til þess að ég nenni að setja inn myndir og svona... Hef engu breytt í fimm ár á þessum slóðum.
En annars í mjög fljótu bragði var 2007 bara alveg ágætt. Svolítil umskipti að klára námið og skipta um heimsálfu. Það á eftir að koma í ljós hvort það var rétt ákvörðun, er enn svolítið á báðum áttum. En það má alltaf flytja til Ameríku aftur...
Eníveis, framtíðin mun öllu ráða um það! Á meðan óska ég bara gleðilegs árs!