Jáh.. nú held ég að það stefni í það að iceland express fái sama heiður og flugleiðir á þessari síðu. Enga hástafi í þessum nöfnum takk fyrir.
Þeir eru farnir að seinka flugum til Evrópu í fyrramálið, mjög líklega út af því að það eru vélar sem eru fastar einhvers staðar úti. Og þá sitja Sigga og Mörður í súpunni, þau þurfa sennilega að kaupa miða með flugleiðum í fyrramálið til þess að ná tengifluginu til Lissabon seinnipartinn.
Það er ekkert laust með Easyjet síðar um daginn eða á sunnudaginn til Lissabon. Ég hefði eiginlega frekar viljað að það félag græddi á þessu kjaftæði í iceland express, frekar en helvítis flugleiðabáknið...
Það skráist hér með að ofangreindar aðstæður eru ein ástæða þess að ég myndi hugsa mig vel um áður en ég ákvæði að búa á Íslandi. (Svona fyrir utan það að líffræðirannsóknir eru illa styrktar á Klakanum...).