Það er ótvíræður kostur þess að búa ekki á Íslandi að maður getur sloppið við jólin ef manni sýnist svo. Ég er til dæmis ekki búin að heyra eitt einasta jólalag. Mér skilst reyndar að það sé komið upp jólaskraut niðri í bæ, en ég hef enn ekki borið það augum. Í mínum heimi gæti allt eins verið september eða október. Fyrir manneskju eins og mig sem er ekkert sérstakt jólabarn er þetta stórfínt. Ég væri sko alveg til í að jólin væru bara á fimm ára fresti, þá væri líka kannski aðeins meiri ástæða til þess að vera með öll þessi læti....
... sem er þokkalega pirrandi. Ætla að fara á morgun að kaupa mér annan síma, en ég fæ ekki nýtt SIM kort fyrr en seinna í vikunni. Þar til þá er best að hringja í heimasímann (eftir kl. 10 á kvöldin, er sjaldan komin heim fyrir þann tíma); 01223 328160, eða bara senda mér tölvupóst.