Ég er búin að vera svo dugleg að fara í líkamsrækt undanfarið. Og ég er loksins farin að lyfta aftur. Ég tók fætur í gær eftir hálftíma á brettinu. Sem væri svosem ekki í frásögur færandi nema af því að í dag líður mér eins og ég sé full. Ég er í einu stóru endorfínkikki.
Það er svo langt síðan mér hefur liðið svona, en þetta er ein besta tilfinning sem ég þekki. Ein besta sagði ég...