Mánudagur, 26 nóvember, 2007
Trúfélagsskráning

Mig langar bara að benda á færsluna hjá Matta þar sem hann bendir fólki á að skrá sig úr Þjóðkirkjunni fyrir 1. des ef það vill ekki styrkja kirkjuna.

"Ef ykkur finnst það að samkynhneigðir fái að giftast jafngildi því að kasta hjónabandinu á sorphaugana... ...verið þá endilega skráð í Ríkiskirkjuna áfram."

Þetta er eins og talað úr mínu hjarta...

Posted by erna at 12:43 EH
Fimmtudagur, 22 nóvember, 2007
Þakklæti

Jáh.. ekki bjóst ég við því þegar ég vaknaði í morgun á degi Þakkargjörðar að ég myndi enda daginn á að borða "Turkey and all the trimmings". En það fór svo þrátt fyrir allt, því að bandarískur doktorsnemi á labbinu mínu bauð til veislu.

Thanksgiving dinner er uppáhalds maturinn minn. Það var líka gaman að sjá hvað ensku krakkarnir voru hissa á hvað þetta er allt öðruvísi máltíð en þau borða á jólunum.

Við enduðum kvöldið á uppvaksi við undirspil Johnny Cash. Þannig að ég fékk minn skammt af Ameríku þrátt fyrir allt.

Posted by erna at 06:50 EH
Þriðjudagur, 20 nóvember, 2007
Breaking News

Það er allt að verða vitlaust í vísindunum í dag. Yamanaka og félögum tókst nefnilega að taka húðfrumur og búa til úr þeim stofnfrumur sem eru jafngildar fósturvísastofnfrumum. Þau bjuggu semsagt til þessar iPS frumur, eins og þær eru kallaðar, með því að tjá aðeins fjögur gen, Sox2, Oct4, cMyc og Klf4, en þau höfðu áður gert þetta við músafrumur. Á sama tíma tókst Thomson-labbinu að gera það sama, en með Sox2, Oct4, Nanog og Lin-28.

Það er allt búið að vera vitlaust á labbinu í dag. Allir talandi um þetta náttúrulega og svo komu BBC og iTV með kamerur og tóku viðtal við Azim, prófessorinn minn. Hann ku vera eitt helsta átorítet um stofnfrumur hér í landi.

Þetta er merkilegur áfangi, en mun líklega verða vatn á myllu Bush stjórnarinnar, því nú er enn minni ástæða til þess að nota fósturvísa til þess að búa til þessar frumur, ef það er hægt að búa þær til úr húðfrumum.

Næsta skref er svo að búa til heilu líffærin úr húðfrumum... (.. jah.. kannski ekki NÆSTA skref.. )

Posted by erna at 12:13 EH
Mánudagur, 19 nóvember, 2007
Hómófóbískir vitleysingar

Er engin ritstjórn á Mogganum? Er allt aðsent efni birt? Ég veit ekki hvort maður eigi að hlæja eða gráta þegar maður les innsent bréf frá Sigþóri Guðmundssyni á bls. 23. Mér finnst nú bara alveg að Mogginn megi taka svona hómófóbíuraus og stinga því undir mottuna hjá sér.

Og auðvitað segist þessi maður kristinn. Ef þetta er það sem kristið fólk stendur fyrir, sem mér sýnist á mörgu miðað við umræðu undanfarinna vikna, er það ansi sorglegt.

Ég er alla vegana fegin að kalla mig ekki kristna þegar fólk kemur fram með svona raus undir einhverjum "kristnum" formerkjum. Það væri nær að banna kirkjuna í grunnskólum. Held að það sé meiri skaði af veiðileifi kirkjunnar á 13 ára börn en opinni umræðu um kynhneigð.

Ég gleðst þeirri stund er við hjónin skráðum okkur úr Þjóðkirkjunni. Ég hvet ykkur til þess að gera hið sama ef ykkur ofbýður líka þessi and-samkynhneigða umræða sem haldið er á lofti undir formerkjum kristni á Íslandi.

Posted by erna at 04:29 FH
Föstudagur, 16 nóvember, 2007
Aksjón maður, aksjón!

Loksins, loksins, er ég byrjuð að gera tilraunir aftur. Fyrsta vinnuvikan sem nýdoktor er afstaðin (svona þvísemnæst). Í dag bjó ég til "chemically competent" E. coli og transformeraði þær með 10 mismunandi plasmíðum. Sumsé kannski ekkert alvöru, en nauðsynlegt byrjunarskref að koma þessum plasmíðum á nýtanlegt form.

Nýja labbið mitt er nett. Mér hefur aftur tekist að koma mér á vinnuharðasta labb þeirrar stofnunar sem ég vinn við. En það ætti varla að koma á óvart. Til dæmis var mér sagt að síðasta laugardagskvöld þurftu sumir frá að hverfa því að öll húddin í frumuræktinni voru í notkun á miðnætti. Bara venjulegir vísindamenn án lífs.

Nýja labbið mitt er líka nett af því að það var massa partí á miðvikudaginn. Þemað var fjórði áratugur tuttugustu aldar. Ég klæddi mig upp í svaka kollu og málaði á mig andlit. Gestgjafinn þekkti mig ekki þegar ég bankaði upp á. Það var djammað framundir morgun, sofið í nokkra tíma og svo mættum við öll hress og kát í Journal Club um morguninn. Harka.

Um helgina þarf ég að sitja við skriftir, enda búin að humma allalvarlega fram af mér skriftum á yfirlitsgrein sem mér var boðið að skrifa fyrir dermatólógíutímarit nokkuð. Best að hespa því af svo maður geti nú svissað í eitt skipti fyrir allt úr húðinni í kímfrumslurnar....

Posted by erna at 12:08 EH
Fimmtudagur, 15 nóvember, 2007
Kúltúrsjokk #0

Gleymdi að segja frá fyrsta alvöru kúltrúrsjokkinu: Það er TEPPI á baðherberginu í íbúðinni okkar.

Posted by erna at 02:04 EH
Sunnudagur, 11 nóvember, 2007
Kúltúrsjokk #3

Það er CCTV í gufubaðinu í gymminu mínu... Úfff... ég vissi að Bretar væru kannski frekar ofstopafullir í því að allir fylgi settum Reglum (með stórum staf, já...) en er þetta nú ekki ansi langt gengið?

Posted by erna at 06:35 EH
Kúltúrsjokk #2

Það er líka vinstri umferð í sundlauginni. Ég stóð mig að því að synda hægra meginn í brautinni þar til konur tvær bættust í hópinn og byrjuðu að synda vinstra meginn. Úff...

Posted by erna at 06:32 EH
Föstudagur, 9 nóvember, 2007
Kúltúrsjokk #1

Seríjósið í Bretlandi er sykurhúðað. Já, venjulega seríjósið. Ég legg ekki í að prófa Honey Nut....

Posted by erna at 10:24 FH
Laugardagur, 3 nóvember, 2007
Enginn veit hvað átt hefur fyrr en flutt hefur....

... sagði mér góð vinkona mín um daginn. Og hún hefur reynst sannspá. Ég vissi ekki fyrr en nú að ég ætti t.d. eftirfarandi:

1. 20 m af þvottasnúru.
2. 5 fet af sjálflímanlegum frönskum rennilás,
3. 15 tommu langa handsög,
4. 3 mismunandi tegundir af rommi.

Og svo mætti lengi telja!

Posted by erna at 03:02 EH