Oh, djöss vesen er það að flytja svona á milli landa. Það er bara allt búið að vera í einhverju rugli. Fyrst kom trukkurinn okkar ekki á Manhattan. Svo var ekki hægt að geyma búslóðina okkar þannig að ég gæti verið á Íslandi fram í nóvember. Og ég sem ákvað að byrja ekki að vinna fyrr en 12. nóv svo ég gæti slappað af hérna heima. Nú þarf ég að vera mætt þann 31. okt til að tæma gáminn. Og ekki nóg með það heldur er ég búin að þurfa að verja deginum í dag í vesen út af því að gámafyrirtækið úti í Bretlandi tekur ekki kreditkort heldur bara millifærslur. Og bankinn þeirra er eitthvað að klikka á því að senda þeim peningana sem við millifærðum í gær og nú eru þau með hótanir um að þau ætli ekki að afhenda búslóðina fyrr en þau séu komin með peninginn! Urrrr.... Og þá á að rukka mann um leigu fyrir umfram daga sem þau halda gámnum vegna þess að bankinn þeirra millifærði ekki peningana!
Þetta er búið að vera rugl alveg frá upphafi. Ég varði síðustu vikunni í New York í stressi ósofin til að reyna að gera allt af því að gámurinn kom sólarhring of seint, og nú er ekki nóg með að það hafi klippst af vika af fríinu mínu heldur þarf ég að verja því í svona rugl!!
... í orðsins fyllstu merkingu. 25°C í New York, 20°C í Cambridge, en bara frost rok og kuldi í Reykjavík.
Ég fann íbúð fyrir okkur í Cambridge, munum búa á 127 St Matthews Gardens á næstunni. Íbúðin er öllu minni en sú sem við vorum í á Manhattan, en hún er splunkuný, með þvottavél og þurrkara, frysti og ísskáp og geymslulofti, þannig að ég kvarta ekki. Töluvert betra en þessar fúkkakompur sem ég varði tíma mínum í að skoða meirihluta síðustu viku.
Cambridge er náttúrulega alger dúlluborg, lítil og krúttleg og þægilega þéttbýl, þannig að það er ekki langt að sækja þjónustu og hægt að hjóla um allt. Svo er bara 45 mínútna lestarferðalag til London og hálftími út á Stanstead, þannig að þetta er bara nokkuð traust allt saman.
Við flytjum inn þann fyrsta nóvember og ég byrja að vinna þann tólfta. Ég er frekar spennt að byrja á vinnunni, en það má eiginelga segja að ég sé nú þegar byrjuð þar sem ég er að skrifa styrkumsókn í augnablikinu.
Símanúmerið mitt á Íslandi er 8676465, en ég verð nú sennilega frekar ófélagslynd þessa vikuna þangað til ég verð búin að skrifa þessa umsókn....
Síminn hjá mér í UK er: 07511296915, alla vegana í bili.
Jæja, búin að skila ritgerðinni inn, þannig að nú er ég opinberlega búin í náminu. Og allt tölvuvesen er búið, engir makkar sem vilja ekki prenta út doktorsritgerðir lengur.
Á morgun flýg ég svo til London og verð í Cambridge að skoða íbúðir næstu daga. Það er mjög furðulegt að vera að fara að yfirgefa New York. Og það er aldrei gaman að kveðja, sérstaklega ekki þegar maður veit ekki hvenær maður hittir aftur manneskjuna sem maður kveður.
Það á eftir að vera erfitt að byrja upp á nýtt í nýju landi án vinanna, en líka spennandi að skipta um umhverfi. Það er eiginlega erfiðara að kveðja þessa krakka en að kveðja íslensku vinina af því að við vitum að við eigum aldrei öll eftir að búa á sama staðnum aftur og það á eftir að vera langt þar til við hittumst aftur....
Einn af kostunum við að flytja frá Ameríku er að ég mun losna úr þessu apple umhverfi hér. Ég þoli ekki makka, þeir eru svo mikið drasl og ég er svo þreytt á að díla við krassandi G5 tölvur og powerbook tölvur sem eru ónýtar eftir 2ja ára notkun. Windows er kannski ekki frábært en það er ekki með pretentious útlit og það virkar betur en þetta apple rusl. Jeijjjj fyrir því.