Fimmtudagur, 25 október, 2007
Urrrrr

Oh, djöss vesen er það að flytja svona á milli landa. Það er bara allt búið að vera í einhverju rugli. Fyrst kom trukkurinn okkar ekki á Manhattan. Svo var ekki hægt að geyma búslóðina okkar þannig að ég gæti verið á Íslandi fram í nóvember. Og ég sem ákvað að byrja ekki að vinna fyrr en 12. nóv svo ég gæti slappað af hérna heima. Nú þarf ég að vera mætt þann 31. okt til að tæma gáminn. Og ekki nóg með það heldur er ég búin að þurfa að verja deginum í dag í vesen út af því að gámafyrirtækið úti í Bretlandi tekur ekki kreditkort heldur bara millifærslur. Og bankinn þeirra er eitthvað að klikka á því að senda þeim peningana sem við millifærðum í gær og nú eru þau með hótanir um að þau ætli ekki að afhenda búslóðina fyrr en þau séu komin með peninginn! Urrrr.... Og þá á að rukka mann um leigu fyrir umfram daga sem þau halda gámnum vegna þess að bankinn þeirra millifærði ekki peningana!

Þetta er búið að vera rugl alveg frá upphafi. Ég varði síðustu vikunni í New York í stressi ósofin til að reyna að gera allt af því að gámurinn kom sólarhring of seint, og nú er ekki nóg með að það hafi klippst af vika af fríinu mínu heldur þarf ég að verja því í svona rugl!!

Posted by erna at 12:48 EH