Laugardagur, 6 október, 2007
Cambridge here I come...

Jæja, búin að skila ritgerðinni inn, þannig að nú er ég opinberlega búin í náminu. Og allt tölvuvesen er búið, engir makkar sem vilja ekki prenta út doktorsritgerðir lengur.

Á morgun flýg ég svo til London og verð í Cambridge að skoða íbúðir næstu daga. Það er mjög furðulegt að vera að fara að yfirgefa New York. Og það er aldrei gaman að kveðja, sérstaklega ekki þegar maður veit ekki hvenær maður hittir aftur manneskjuna sem maður kveður.

Það á eftir að vera erfitt að byrja upp á nýtt í nýju landi án vinanna, en líka spennandi að skipta um umhverfi. Það er eiginlega erfiðara að kveðja þessa krakka en að kveðja íslensku vinina af því að við vitum að við eigum aldrei öll eftir að búa á sama staðnum aftur og það á eftir að vera langt þar til við hittumst aftur....

Posted by erna at 07:34 EH