Mánudagur, 24 september, 2007
Mahmoud

Þegar ég gekk um kampusinn um kvöldmatarleitið heyrði ég oftar en einu sinni og oftar en tvisvar fólk segja: "Did you know that there are no homosexuals in Iran?".

Posted by erna at 11:24 EH
Mahmoud Ahmadinejad

Það er allt á suðupunkti hér á slóðum í dag. Mahmoud Ahmadinejad Íraksforseti mun nefnilega halda ræðu fyrir Kólumbíuhálskólasamfélagið í dag. Sjálfur helfararafneitarinn ætlar að segja nokkur orð við fólk í skóla sem er fjölsetinn gyðingum.

Auðvitað verða skipulögð mótmæli í gangi og öryggisgæslan er í botni. Það er búið að girða allt skólasvæðið af, lögreglan er hér um allt og tugir sendiferðabíla teygja gervihnattadiska sína til himins á meðan veltilhafðar fréttakonur standa á gangstéttunum og segja frá viðburðinum.

Ég velti því fyrir mér hvort ég ætti að fara að hlusta á hann, en ákvað að gera það ekki. Ég er hins vegar á báðum áttum hvort ég eigi að taka þátt í mótmælum gegn honum... Mörður segir að ég eigi að gera það, það fari mér vel að mótmæla.. ehrm...

Posted by erna at 12:41 EH