Mánudagur, 3 september, 2007
Línuskautar

Fór á línuskautunum á labbið áðan. Frekar ljúft bara að þeysast meðfram Hudson í sólskininu, finna sjávarlyktina og horfa á fólkið í lautarferðum.

Það eru komin tvö ár síðan ég fór síðast á línuskauta og það verður að viðurkennast að mér hefur förlast aðeins tæknilega. Á ekki eins auðvelt með að stoppa og áður. Það er líka svo fyndið þegar maður er komin með hjól á lappirnar virðast minnstu hindranir vera risa farartálmar og smá halli verður að heilu fjalli...

Jæja, 2x45 mín fyrir svefnin og þá segjum við þetta gott...

Posted by erna at 08:47 EH
Ooooooo......

Það er sól úti. Það er yndislegt veður, 28°C og ljúfheit og mig laaaangar svo út á línuskauta. En, nei, ég verð að hanga hér inni yfir dissinu. *@x°#... urrrr

Posted by erna at 01:41 EH