Sunnudagur, 2 september, 2007
Lunch

Lunch
Originally uploaded by ernam.

Það er eiginlega alveg ótrúlegt hvað maður hefur tíma til þess að gera hluti eins og að ELDA sér hádegismat, þegar maður á í raun og veru að vera að skrifa þessa blessuðu ritgerð. (Og já, það tók meira en 10 mínútna pásu að elda þessa ommelettu...).

ps.. já... og svo hefur maður nátturulega endalausan tíma til þess að dúlla sér við að ljósmynda matinn sem maður eldaði.. Ég held að ég ætti að drífa mig að klára þessa ritgerð og fara að gera eitthvað af viti!

Posted by erna at 03:08 EH
Lotuvinna

Jæja, þá er kallinn kominn á klakan, mín eftir hér vestanhafs í síðsumrinu. Það er Labor Day helgin og hún er löng. Tilvalin helgi til þess að klára fyrsta uppkast að dissinu.

Ég er með ákveðið kerfi í gangi til þess að efla afköstin. Ég stilli skeiðklukku á 45 mínútur í senn og á þeim tíma verð ég að vinna. Þegar klukkan tístir, fæ ég tíu í pásu og held svo áfram í aðrar 45 mínútur. Stundum gengur reyndar svo vel að ég held áfram lengur en í 45 mínútur, en þetta kerfi er frábært á dögum þegar einbeitingin fer í frí...

Jæja, kominn tími á fyrstu 45....

Posted by erna at 09:47 FH