Miðvikudagur, 29 ágúst, 2007
Blogito ergo sum?

Í dag er ég glöð yfir að vera ekki Moggabloggari. Hingað getur enginn komið og strokað núll útaf teljaranum mínum. Því alþjóð veit að ekki er til sú hreinni og tærari mótívasjón til blogghalds en teljarakeppnin.

Posted by erna at 01:13 FH
Miðvikudagur, 22 ágúst, 2007
Fimbulkuldi

Nehh.. kannski ekki alveg fimbulkuldi, en það er um það bil 20°C kaldara en venjan er á þessum árstíma hér. Semsé, bara sextán stilga hiti.

Ég sit hér í lopasokkum við tölvuna, í flíspeysu með rennt upp í háls og sötra heitt súkkulaði. Eitthvað annað en fyrir tveimur vikum síðan þegar ég sat hérna á naríunum með fæturna á ís til að spara loftkælinguna. Furðulegt alveg hreint.

Dissið gengur vel, er að verða búin með intróið.

Posted by erna at 12:53 EH
Fimmtudagur, 16 ágúst, 2007
Schwindlari

Ég er að sötra kaffibolla. Namm! Fyrsti kaffibollinn í heila viku. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki saknað kaffisins mikið, en ég svaf frekar lítið í nótt og þurfti smá spark í afturendann.

Ég er stórhrifin af því að sleppa kaffinu. Ég er nefnilega alltaf alveg endalaust svöng og blóðsykurinn hjá mér hrynur reglulega yfir daginn. Ég las mér til um áhrif koffeins á insúlínmagn í blóði og ákvað að prófa að draga úr sykur og kaffineyslu. Sykurneyslan var auðveld, ég borða sjaldan mikinn sykur, en kaffið hefur verið fastur punktur í tilverunni undanfarin sautján ár og því aðeins erfiðara að sleppa því, en þó mun auðveldara en ég bjóst við.

Og viti menn, mér líður bara mikið betur.

Posted by erna at 01:04 EH
Mánudagur, 13 ágúst, 2007
Hrákasmíði

Úff. Ég var að lesa yfir það sem ég er búin að skrifa af dissinu og það var ekki skemmtileg lesning. Ég er að reyna að verða ekkert voðalega stressuð yfir þessu öllu. Inni í mér berjast væntingar um að leggja metnað í skriftirnar (sem er hálftilgangslaust) eða bara að rumpa þessu af.

Það eru sex vikur í vörn, ég hef mánuð til að klára lufsuna ásamt því að klára tilraunirnar mínar. Spennan magnast!

Posted by erna at 06:40 EH
Fimmtudagur, 9 ágúst, 2007
Flúðafjör

Jæja, það á að kólna í næstu viku, niður í þrjátíu gráður. Í fyrradag langaði mig að setja klút fyrir vit mér því að það var eiginlega bara ógeðslegt að anda. Það bærðist ekki hár á höfði og mengunin bara hékk yfir borginni. 90% loftraki og 35 gráðu hiti gerðu svo útslagið.

Sem betur fer erum við að fara út úr bænum um helgina, það er strax betra að komast bara aðeins út úr borginni en við ætlum samt alla leið upp í Massachusetts í rafting á Deerfield ánni. Meðferðis verða tvö íslensk lambalæri og góða skapið.

Posted by erna at 03:48 EH
Miðvikudagur, 8 ágúst, 2007
Brandur breimaði loftið kveinaði

Grey Mörðurinn er fastur einhvers staðrar í þessu rusla-lestarkerfi. Þetta er náttúrulega alveg fáránlegt að það stíflist allar samgöngur hér eftir hálfa nótt af rigningu.

Ég gat ekki sofið, einhverra hlutanna vegna. Ætli það hafi ekki verið þessi hálfi kaffibolli sem ég fékk mér í hádeginu í gær! Stemningin var frekar sveitt í nótt, það breimaði hér köttur í bakgarðinum hálfa nóttina og svo þegar hann hætti tóku við þessar svakalegu þrumur og eldingar og úrhelli. Mér fannst það eiginlega bara kósí, enda vorum við ekki í þeim hópi fólks sem missti rafmagnið.

En í alvöru talað, New York þarf að uppfæra vélbúnaðinn. Ef það er of heitt fer rafmagnið af hálfri borginni, ef það rignir ganga lestarnar ekki. Ef það snjóar ganga lestarnar ekki heldur, alla vegana ekki Long Island lestarnar. Þessi borg er svo úrelt. Sennilega þarf að uppfræra stýrikerfið líka.

En að mörgu leyti er ekki hægt að bera New York saman við aðrar borgir því að hún er svó óendanlega stór og verðursveiflurnar hérna eru svo svakalegar. Það er sirka sextíu gráðu hitamunur á kaldasta og heitasta degi ársins hérna að jafnaði. Í gráðum Celsíus.

Posted by erna at 11:05 FH
Þvottapokastemmning

Þegar það er algert logn og mengun og ótrúlegur raki líður mér eins og ég sé stödd í skítugum þvottapoka, þannig var stemmningin hér í gær.

Það rigndi í nokkra klukkutíma í nótt, eldi og brennisteini, alla vegana varði þrumuveðrið í nokkra klukkutíma og var enn í gangi þegar ég sofnaði loksins um fimmleitið. En ég bara skil ekki hvers vegna það telst til frétta að samgöngukerfið lamist, það gerist alltaf þegar það rignir eða snjóar eitthvað að ráði í þessari borg. Lestarkerfið hér er algert drasl, löngu úrelt og sprungið.

Posted by erna at 10:36 FH
Þriðjudagur, 7 ágúst, 2007
Prókrastínasjón

Jæja, það hvarf úr mér allur vindur áðan. Þannig að það var tími til að fá sér fyrsta kaffibollann síðan á föstudaginn. Og ég held að hún Herdís mín hafi rétt fyrir sér.. það nær engri átt að hætta að drekka kaffi þegar maður er að skrifa dissið. Ég fékk mér hálfan bolla af lapþunnu kaffihlandi og nú er eins og það sér raketta í afturendanum á mér, ég bara get ekki stoppað!

Svona til að ballansera alla fyrirframnostalgíuna: Ég hlakka til að fá gott karrý í Englandi. Ég á enn eftir að finna almennilegan indverskan hér í NY. Það getur verið mjög góður matur hér, en karrý er ekki inni á þeim lista.

ps. Mín íslenska stafsetning fer síversnandi, sennilega af því að ég les nær aldrei íslensku nema á bloggum og mbl.is. Nú bara er ég að hiksta á einum eða tveimur ennum. Svei mér þá....

Posted by erna at 12:21 EH
On the roll

Dissið puðrast út úr mér villt og galið þessa dagana. Vonandi að það verði komin einhver mynd á þetta fyrr en varir. Frekar gaman bara að sitja hér heima og hlussta á SKY FM Classical Radio og Gufuna til skiptis í gegnum Squeezeboxið á meðan ég háma í mig skyrhræring með pekan-hnetum, sötra sódavatn og les mér til um frumulíffræði og sameindalíffræði ysta lags húðarinnar, á milli þess sem ég hripa niður nokkur orð (og blogga).

Meiri fyrirframnostalgía: Ég á eftir að sakna þess að borða yndislegt ferskt sushi í hverri viku, já, nær hverjum degi. Það er einn kosta þess að búa í Stóra Eplinu, geðveikt sushi, sem þó kemst víst ekki í námunda við sushi á vesturströndinni. Kannski fór ég bara á vitlausa staði til að fá mér sushi í UK, en ég var ekki mjög impóneruð....

Posted by erna at 10:01 FH
Miðvikudagur, 1 ágúst, 2007
Hlaupatúttur

Við hjónin drifum okkur loksins aftur saman í gymmið í gær og tókum smá sprett á hlaupabrettinu og lyftum. Við höfðum svo sannarlega gott af því.

Og ég fór í Super Runners Store og keypti mér nýja skó. Sú búð er æði. Fábær þjónusta. Ég labbaði inn og sagðist þurfa skó fyrir flata fætur og að ég væri ekki búin að hlaupa í meira en ár útaf fótunum á mér. Mér var sagt að vippa mér úr skónum og spranga um berfætt á meðan afgreiðslumaðurinn virti fyrir sér bífurnar á mér. Síðan fór hann upp í hillu og sótti þrjú mismunandi pör af skóm og hjálpaði mér að máta þá alla. Og máta þýðir: "Now go out there and try them on concrete". Semsagt, maður fær smá "mini-workout", hlaupandi í kringum blokkina í hitanum til að prófa alla þessa skó. Og skórnir sem hann sagði að væru sennilega bestir fyrir mig voru æði! Ég vildi að ég gæti teki þessa búð með mér þegar ég flyt til Englands.

Ég á líka eftir að sakna New York Sports Club alveg svakalega þegar við flytjum héðan. Það er eitthvað svo frábært að skiptast á að fara í 4-5 líkamsræktarstöðvar eftir því hvaða líkamsræktartími er í gangi eða hvaða tími dags er. Og allar stöðvarnar eru litlar og vinalegar og starfsfólkið er frábært. Ekkert World Class kjaftæði með einhverju fáránlegu gleri og stáli og risa gímaldi með milljón hlaupabrettum. Bara næs og kósí.

Fyrirframnostalgía: to be continued....

Posted by erna at 09:04 FH