Sunnudagur, 29 júlí, 2007
Dunur

Oh.. kósídagur í dag. Þrumurveður og læti úti og ég kúri hér fyrir framan tölvuskjáinn, hlusta á Bonnie "Prince" Billy og skrifa og les til skiptis.

Svo verður enn meira kósí í kvöld þegar Mörðurinn mætir á svæðið frá Íslandi.

Posted by erna at 02:53 EH
Laugardagur, 28 júlí, 2007
Of gaman

Í dag er einn af þeim dögum sem ég óska þess að það hefði verið aðeins minna gaman í gær. Þá væri kannski aðeins meira gaman í dag. Eða auðveldara að vera til.

Eftir vinnu fór ég í þakveislu í einum stúdentaíbúðaturnanna á Medical Center kampus Kólumbíu. Veðrið var geggjað, tjúllað sólarlag og brjálað útsýni suður eftir Manhattan. Bjór og grænmetisborgarar runnu mjög ljúft niður með áhugaverðum samræðum og góðri tónlist. Eftirá var svo partí heima hjá Ryan vini mínum, þar sem ég kynntist fullt af nýju fólki.

Í dag er aðeins minna gaman eins og áður segir, en ritgerðardruslan lengist smátt og smátt.

Posted by erna at 04:09 EH
Miðvikudagur, 25 júlí, 2007
Endasprettur

Jæja, mætt aftur hér við skrifborðið mitt. Búin að festa lyklaborðsskúffu á borðið og allt til þess að auðvelda mér skriftirnar. Já, nú er nefnilega komið að því, ég hef tvo mánuði til þess að gubba út úr mér svosem eins og einni doktorsritgerð. Ekki það að ég búist við að það taki tvo mánuði, en ekki er ráð nema í tíma sé tekið.

Nýja morgunrútínan mín er bara frekar ljúf. Fer á fætur klukkan sex, bora í nefið í smá stund og prumpa. Bý til skyrhæring og ét hann. Bretti upp á fingurna og byrja að lesa og skrifa um sjöleytið (eh... já, ég meina, byrja að blogga um sjö!!!).

Svo stefni ég á smá jógarútínu í dag í hádeginu áður en ég mæti í slaginn í vinnnunni. Hljómar vel eh? Eini gallinn er að ég er að hætta að drekka kaffi. Væri alveg til í svosem eins og tíu núna, en það er víst ekki í boði.

Posted by erna at 07:05 FH
Þriðjudagur, 24 júlí, 2007
Haggis

Og svona fyrst ég er að blogga um skyrhræring verð ég að koma því að að ég hafi loksins smakkað haggis þegar við vorum í Edinborg um daginn. Ég borðaði haggisfylltar kjúklingabringur sem voru unaðslega ljúffengar. Væri til í meira núna!

Fann samt ekki mikin mun á þessu og hefðbundinni lifrarpylsu.

Posted by erna at 07:31 EH
Endurvinnsla

Ég sit hér í makindum mínum og borða morgunmat. Ég er búin að vera að reyna að taka til í mataræðinu undanfarið og keypti svona bók í London um það hvernig maður heldur blóðsykrinum stöðugum yfir daginn. Eitt gott ráð er að borða alltaf prótín með öllu kolvetni.

Ég borða alltaf hafragraut í morgunmat, vetur, sumar vor og haust. Í bókinni góðu var stungið upp á því að maður setti smá jógúrtslettu út í grautinn áður en maður borðaði hann, svona til að hressa upp á prótíninnihaldið. Ég tók því gríska jógúrt út úr ísskápnum, þessa sem bragðast eins og skyr, og sletti út á og dáðist í huganum að því hvað þetta væri nú einfalt ráð og bara í alla staði sniðugt. Þangað til að ég settist hér við tölvuna og uppgötvaði að ég væri að borða skyrhræring. Ekkert nýtt á nálinni hér semsagt.

Hræringurinn bragaðist dásamlega. Hann afi hafði nú kannski bara oft rétt fyrir sér. En ekki held ég að hann hafi borðað saxaðar valhnetur útá grautinn sinn. Þar held ég að blóðmör hefði frekar orðið fyrir valinu.

Posted by erna at 09:03 FH
Fimmtudagur, 19 júlí, 2007
Good Morning New York

Er mætt aftur til New York í hitasvækjuna. Var að þurrka af skrifborðinu mínu, það var svo mikið ryk á því að það mætti halda að ég hefði verið í burtu í ár en ekki rúma viku. Hvernig ætli lungun á manni líti út ef þetta er það sem loftræstikerfið dælir út úr sér?

En að öllu tuði slepptu þá er bara næs að vera komin heim. Væri alveg til í að hafa Mörð hér líka, en hann fór til baka til Íslands. En nú er bara að rúlla upp ermunum og dýfa sér út í tilraunir vikunnar.

Posted by erna at 12:01 EH
Fimmtudagur, 12 júlí, 2007
Stigagjöf

Af fimm stjörnum mögulegum:

Veðrið í Cambridge:**** (ekki of heitt, ekki of kalt, engin rigning. What else can a girl ask for).
Breskur hreimur:* (Sem betur fer tala allir vísindamenn með erlendum hreim eins og tékkneskum og japönskum, þannig að ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því að pikka upp breskan hreim ef ég flyt hingað.)
Gistiheimilið sem ég er á:** (Ein auka stjarna af því að ég get stolið þráðlausu interneti frá nágrannanum. )
Sjónvarpið í herberginu mínu:***** (Það væri sennileg eðlilegast að gefa þessu sjónvarpi mínus fimm stjörnur, en fjarstýringin er svo mikil ráðgáta og hefur valdið mér svo mikilli skemmtan að ég get ekki annað en gefið henni fimm stjörnur. Hverjum hefði dottið í hug að hún myndi skipta yfir á stöð fimm í hvert skipti sem maður reynir að hækka og svo slökkvá á sjónvarpinu þegar maður reynir að lækka? Magnað).
Matur í Cambridge:** (Fimm stjörnur fyrir frábært karrý á Karrýgarðinum í gær. Mínusstjörnurnar voru fyrir ofeldaðan sverðfisk í hádeginu og algerlega misheppnað risotto í kvöldmatinn. Uppskriftin af risottoinu var sennilega svona: Takið parboiled hrísgrjón (passa að nota alls, alls ekki arborio hrísgrjón) sjóðið þau í tíu mínútur. Takið aspas og saxið hann útí ásamt laxi úr dós sem hefur verið velgdur í örbylgjuofninum í nokkrar sekúndur. EKKI SALTA og EKKI KRYDDA. Berið fram volgt og sturtið nokkrum matskeiðum af lélegum parmesanosti fyrir framan nefið á vitlausum kúnnanum. Best með dísætu hvítvíni.
Umferðin í Cambridge:*** (Mínus fimm stjörnur fyrir að keyra um öfugum megin á götunni. Plús átta stjörnur fyrir reiðhjólamenningu).

Þar hafið þið það. Ætli maður verði ekki að gera svona úttekt á New York þegar maður kemur þangað?

Posted by erna at 03:31 EH
Atvinnuviðtal

Ég fór í mitt fyrsta formlega atvinnuviðtal í dag. Kominn tími til, svona fyrst maður er kominn hátt á fertugsaldurinn. Ég varði deginum í dag á rannsóknarstofu í Cambridge í Englandi þar sem ég byrjaði á því að halda fyrirlestur um verkefnið mitt (sem ég massaði, ég veit, ég er svo hógvær) og svo talaði ég við prófessorin í allt of marga klukktíma og svo póstdokkana hans og svo loks aftur við prófessorin og endaði með óformlegt atvinnutilboð uppá vasann, sem vonandi verður svo staðfest í lok mánaðarins. Úllalla. Og ég er alveg gersamlega úrvinda. En það þýðir lítið að slappa af, ég þarf að taka mig til og lengja fyrirlesturinn minn úr 20 í 45 mínútur fyrir næsta viðtal sem verður í Edinborg á Mánudaginn. Fyrst kvartaði ég endalaust yfir því að fá bara 20 mínútur í Cambridge, og nú ætla ég að væla yfir því að þurfa að tala í heilar 45 mínútur í Edinborg. Það er ekki hægt að vera of ánægð er það?

Posted by erna at 12:33 EH
Fimmtudagur, 5 júlí, 2007
Skítafyrirtækið flugleiðir

Það er flugleiðum ekkert heilagt. Ég hlakka svo til að neyðast ekki lengur til þess að skipta við þá til að komast til Íslands.

Mörður er úti á flugvelli núna á leiðinni til ástkæra, ylhýra. Hann ætlaði að kaupa eina viskýflösku í flughöfninni. En viti menn, hann fékk ekki að kaupa hana af því að flugleiðir (já, fyrirtækið fær ekki hástaf í nafninu hjá sér á mínu bloggi), hafa bannað búðunum á flugvellinum að selja Íslendingum áfengisflöskur! Örugglega til þess að pína fólk til þess að versla við þá okurbúllu sem fríhöfnin í Keflavík er.

Ég sver þess heitan eið að versla ekki aftur við fríhöfnina heima og skipta ekki aftur við flugleiðir á næstunni.

Posted by erna at 12:53 EH
Miðvikudagur, 4 júlí, 2007
Líf mitt í hnotskurn

http://www.phdcomics.com/comics.php

Posted by erna at 10:57 EH