Föstudagur, 29 júní, 2007
Biofuel anyone?

Rétt upp hönd sem hefur aldrei notað bio-eldsneyti á bílinn sinn!

OK, einhvern veginn verðum við að knýja áfram sjálfrennireiðar okkar, en ég verð að segja að ég er ekkert voðalega hrifin af þessari bíóetanól-lausn.

Fyrir það fyrsta fer það alveg svakalega í taugarnar á mér að eldsneyti sem unnið er beint úr plöntum sé kallað "biofuel" hér í BNA, eða lífrænt eldsneyti (ef einhver er með betra íslenskt orð má sú/sá hin/n sama/i leggja hér orð í belg). Ef etanól unnið úr maís eða öðrum plöntum er "biofuel" er bensín þá ekki lífrænt eldsneyti?

Í öðru lagi, þá getur vel verið að það að nota eldsneyti unnið úr sykri og öðru valdi minni útblæstri á koltvíoxíði. Það sem ég hef á móti þessari lausn er það að mér finnst alveg nógu hart gengið að jarðvegi jarðarinnar þósvo að við notum hann ekki til þess að búa til bílabensín. Ætli jarðvegsrof og annað slíkt sé tekið með í reikninginn þegar það er talað um lífetanól? Eða er þetta bara eins og þegar talað er um umhverfisvæna orku til álvera að bara hluti af jöfnunni er reiknaður út? Jarðvegsrof er náttúrulega bara sjálfsagður og eðlilegur hlutur.

En kannski er þetta skárra en að vera háð miðausturlöndum með olíu, allavegana ef maður heitir USA.

En hvað sem öllu líður er ég að hugsa um að fá mér lífetanól að drekka í kvöld. Það er svo mikið betra en ólífrænt etanól. Það er ekki viðlíku saman að viðjafna.

Posted by erna at 11:11 FH
Miðvikudagur, 27 júní, 2007
....'cause after all he's just a man...

Mörður gaf mér geisladiskinn Stand by Your Man, me Tammy Wynette í brúðkaupsafmælisgjöf. Hann er í græjunum núna, yfirgrnæfir þrumuveðrið úti. Þegar ég setti diskinn í áðan fékk ég allt í einu flassbakk aftur til þess tíma þegar ég bjó á Íslandi. Allt í einu var svipað andrúmsloft í gangi og þegar maður keyrir í gegnum Reykjavík seint á dimmu kvöldi með útvarpið í gangi (Rólegt og rómantískt einhver?) og rigningin dynur á framrúðunni.

Og allir saman nú: Stand by your man lalalalalalallllallla.....

Posted by erna at 09:52 EH
Þriðjudagur, 12 júní, 2007
Cloning=Done

Jæja, haldiði ekki barasta að mín sé búin að framkvæma sína fyrstu sticky end klónun. Kominn tími til, þetta er kennt í sameindalíffræði 101 í flestum fjöbrautaskólum held ég barasta.

Og þá er það bara að skúbba sér í blunt end klónunina. I'm a lean mean cloning machine...

Posted by erna at 03:33 EH
Sparperur

Húsvarðargaurinn var að koma og skipta um ljósaperur í stofunni hjá okkur. Það er greinilega orkusparandi á fleiri en einn hátt að vera með sprungnar perur í loftljósinu. Nú verður víst ekki hjá því kommist að verja smá orku í þrif og tiltekt. Ansans.

Posted by erna at 09:05 FH
Mánudagur, 11 júní, 2007
Halsbedtændelse

Ég er með hálsbólgu dauðans og missti af strandferð stelpugengisins um helgina. Dæmigert að vera bara lasin þegar eitthvað svona skemmtó stendur til.

Það verður reynd meiri klónun í dag. Ég segi ekki meir...

Posted by erna at 09:17 FH
Föstudagur, 1 júní, 2007
Directional Cloning

Ég er enn að reyna að klóna og ekkert gengur. Það er samt pínu gaman af því að þetta er svo öðruvísi en það sem ég hef gert til þessa. Og ég er svo mikil bjartsýnismanneskja að ég er náttúrulega alltaf viss um að í næsta skipti takist þetta, en hingað til hefur það nú reyndar ekki gerst!!

Ég var að spá í dag hvort að T4 DNA ligase geti hindrað transformation á electrocompetent bakteríum, þar sem neikvæða kontrólið mitt sem ekki innihélt lígasa var það eina sem gaf mér einhverjar kólóníur af E.coli, (jamm.. sorrí kann ekki líffræði á íslensku) og rakst þá á þessa líka frábæru Wiki-síðu. Og lærði líka í leiðinni að vissulega getur lígasi hindrað tranformasjón. Ligation-afurðirnar mínar eru því í 65°C vatnsbaðinu núna til að grilla elsku ensímið. Ég elska nördahorn internetsins. Og auðvitað tekst þetta í þetta skiptið, er þaggi?

Í öðrum fréttum er það að ég keypti mér adidas strigaskó á Zappos.com í gær og fékk þá afhenda í vinnuna í dag. Mér finnst þeir svo sætir að ég stend mig að því að spegla mig í glerskápunum frami á gangi þegar ég geng þar um. Algert æði.....

Posted by erna at 07:06 EH