Föstudagur, 29 júní, 2007
Biofuel anyone?

Rétt upp hönd sem hefur aldrei notað bio-eldsneyti á bílinn sinn!

OK, einhvern veginn verðum við að knýja áfram sjálfrennireiðar okkar, en ég verð að segja að ég er ekkert voðalega hrifin af þessari bíóetanól-lausn.

Fyrir það fyrsta fer það alveg svakalega í taugarnar á mér að eldsneyti sem unnið er beint úr plöntum sé kallað "biofuel" hér í BNA, eða lífrænt eldsneyti (ef einhver er með betra íslenskt orð má sú/sá hin/n sama/i leggja hér orð í belg). Ef etanól unnið úr maís eða öðrum plöntum er "biofuel" er bensín þá ekki lífrænt eldsneyti?

Í öðru lagi, þá getur vel verið að það að nota eldsneyti unnið úr sykri og öðru valdi minni útblæstri á koltvíoxíði. Það sem ég hef á móti þessari lausn er það að mér finnst alveg nógu hart gengið að jarðvegi jarðarinnar þósvo að við notum hann ekki til þess að búa til bílabensín. Ætli jarðvegsrof og annað slíkt sé tekið með í reikninginn þegar það er talað um lífetanól? Eða er þetta bara eins og þegar talað er um umhverfisvæna orku til álvera að bara hluti af jöfnunni er reiknaður út? Jarðvegsrof er náttúrulega bara sjálfsagður og eðlilegur hlutur.

En kannski er þetta skárra en að vera háð miðausturlöndum með olíu, allavegana ef maður heitir USA.

En hvað sem öllu líður er ég að hugsa um að fá mér lífetanól að drekka í kvöld. Það er svo mikið betra en ólífrænt etanól. Það er ekki viðlíku saman að viðjafna.

Posted by erna at 11:11 FH