Föstudagur, 1 júní, 2007
Directional Cloning

Ég er enn að reyna að klóna og ekkert gengur. Það er samt pínu gaman af því að þetta er svo öðruvísi en það sem ég hef gert til þessa. Og ég er svo mikil bjartsýnismanneskja að ég er náttúrulega alltaf viss um að í næsta skipti takist þetta, en hingað til hefur það nú reyndar ekki gerst!!

Ég var að spá í dag hvort að T4 DNA ligase geti hindrað transformation á electrocompetent bakteríum, þar sem neikvæða kontrólið mitt sem ekki innihélt lígasa var það eina sem gaf mér einhverjar kólóníur af E.coli, (jamm.. sorrí kann ekki líffræði á íslensku) og rakst þá á þessa líka frábæru Wiki-síðu. Og lærði líka í leiðinni að vissulega getur lígasi hindrað tranformasjón. Ligation-afurðirnar mínar eru því í 65°C vatnsbaðinu núna til að grilla elsku ensímið. Ég elska nördahorn internetsins. Og auðvitað tekst þetta í þetta skiptið, er þaggi?

Í öðrum fréttum er það að ég keypti mér adidas strigaskó á Zappos.com í gær og fékk þá afhenda í vinnuna í dag. Mér finnst þeir svo sætir að ég stend mig að því að spegla mig í glerskápunum frami á gangi þegar ég geng þar um. Algert æði.....

Posted by erna at 07:06 EH