Ég er að læra að klóna þessa dagana. Sem er eiginlega alveg fáránlegt af því að það er svo mikið undirstöðuatriði í sameindalíffræði. Ég hef nú reyndar klónað áður, en það var mjög einfalt dæmi og það var fyrir 5 árum síðan. Þannig að nú geng ég um labbið og spyr félagana mjög beisik spurninga, sem öllum finnst voða "cute".
Svo er þetta pínu frúst, af því að fólkið á labbinu sem bjó til plasmíðin sem ég er að nota veit ekkert hvað það var að senda mér og sagði mér greinilega bara eitthvað bull! En svona er lífið, þetta væri ekki gaman ef þetta væri eitthvað auðvelt....
Ekki tókst mér að mæta hálfátta í morgun! Ég vaknaði ekki fyrr en sjö, en þegar Mörður vaknaði og fór út klukkan sex var mig að dreyma svo mikið að ég sannfærði sjálfa mig um að það væri ekki kominn tími til að fara á fætur. Þannig að ég mætti klukkan hálfníu, klukkutíma á eftir áætlun... Ég reyni að vinna þetta upp í dag svo ég komist í Total Body Conditioning tímann minn í kvöld.
Annars er bara þoka í New York í dag. Það var búið að lofa okkur 20°C og sól. Kannski að það rætist úr því seinni partinn.
Það virðist vera að vorið hafi komið um leið og ég kom frá Íslandi. Húfur og vetlingar eru því komnir ofaní kassa ásamt öðrum vetrarfötum. Það styttist í stuttbuxnaveðrið!