Ég varði deginum í New York Skin club. Tjúllað stuð í boði labbs keppinautanna. Ég gaf þeim illt auga nokkrum sinnum, vona að þær hafi fengið hiksta... Nehh.. ég segi nú bara svona.
Það var samt gaman bara að skreppa aðeins austuryfir og hlusta á fyrirlestra í svosem eins og dagsstund. Lærði smá nýtt og allt. Det er bara kjult.
Ég lærði líka norsk blótsyrði í gær. Við fórum á seinna kvöld Banff stuttmyndahátíðarinnar. Myndirnar voru skemmtilegri en fyrra kvöldið. Uppúr stóðu tvær myndir, en ég lærði norsku blótsyrðin frá norskri mynd um labbitúr yfir jökul í Patagóníu: Patagonia — A Travel to the End of the World. Hún er gerð af TV2 í Noregi þannig að hún ætti að koma í sjónvarpinu heima einhvern tíman, er þaggi? Mæli með henni.
Og nú er ég bara á labbinu að velgja æti fyrir frumslurnar. Skál fyrir því.