Ég átti minn vikulega fund með proffanum í morgun. Hún var álíka stressuð yfir stöðunni á greininni og ég. Í hvert skipti sem tölvan hennar gaf frá sér "ding" hætti hún í miðri setningu til þess að sjá hvort það væri verið að láta okkur vita með greinina. Ég játaði fyrir henni að ég hefði tékkað á stöðunni á klukkutíma fresti í gær og það kom glampi í augun á henni: "You can check the status online?!" og hún flýtti sér að logga sig inn. Svo núna verðum við báðar á síglæðihnappnum í dag. Brjálað stuð. Talandi um að vera desperate....