Fimmtudagur, 1 mars, 2007
Síglæðingarhnappurinn sívinsæli

Jæja, greinardrussssslan fór út á þriðjudaginn, öllum til mikils léttis. Tveimur sólarhringum síðar er ekki enn búið að hafna henni, og ég ligg inni á heimasíðu útgefenda vísindatímaritsins og ýti í sífellu á "manuscript status" takkann til að athuga hvort eitthvað hafi breyst. Ég nenni nefnilega ómögulega að byrja aftur að skrifa þessa grein í næstu viku.

Á meðan er ég að hanna næstu tilraunir og lesa mér til í fræðunum. Það er erfiðara nú en í síðustu umferð að koma auga á tilraunir sem ritrýnendur munu augljóslega biðja um, en ég er þó komin með lista yfir nokkrar sem lofa góðu.

Svo er málið náttúrulega bara að drífa sig heim í smá "frí" áður en slagurinn heldur áfram.

Posted by erna at 06:22 EH