Föstudagur, 16 febrúar, 2007
Biffen

Við ætlum í bíó í kvöld að sjá Líf annarra (Das Leben der Anderen). Hálfgerð njósnamynd sem gerist í Austur Þýskalandi fyrir fall múrsins.

Við erum búin að vera dugleg að fara í bíó undanfarið. Síðan um áramótin erum við búin að sjá Volver, Ilminn, Ítalann og svo sáum við Drottninguna rétt fyrir jól. Það er lítið bíó beint á móti Óperunni sem sýnir mikið af erlendum myndum og við förum eiginlega á flestar myndir sem eru sýndar þar. Við gerum oft smá leiðangur úr því. Byrjum í Whole Foods og fáum okkur eitthvað gómsætt úr hlaðborðinu þar og borðum í kaffiteríunni, svo förum við í bíó og endum í Barnes and Nobles og skoðum bækur í klukkutíma eða svo. Fullkomið kvöld fyrir fólk á miðjum aldri....

Posted by erna at 11:48 FH
Miðvikudagur, 14 febrúar, 2007
Ofankoma

Það schnjóaði í dag. Og það mætti halda að það hefði verið heimsendir, ekki bara smá vatn í föstum fasa sem tyllti sér á jörðina. Það var brjálað rok og hagl þegar ég mætti í vinnuna, svona veður sem fær mann til þess að finna að maður sé lifandi. Það snjóaði samtals svona nokkrum sentimetrum, en samt sem áður var lítið um fyrirlestrahöld á Spítalakampusinum. Data club var frestað vegna veðurs í morgun og mesta svekkið af öllu var að hádegisfyrirlestrinum um stofnfrumur var frestað. Og ég var búin að hlakka til í heilan mánuð! Bömmer.

Posted by erna at 11:08 EH
Fimmtudagur, 8 febrúar, 2007
Fussball

Áður en ég flutti til Ameríku hélt ég að fákeppni væri eitthvað sem bundið væri við lítil lönd eins og Ísland. Og ég var minnt á þetta áðan þegar ég las færsluna hans Matta um samkeppnisaðstöðu Sýnar og Stöðvar 2 varðandi útsendingar á enska boltanum.

Þetta er hins vegar ekkert skárra hérna í landi kapítalismans. Hér eru tvær stöðvar sem skipta sirka jafnt á milli sín útseningum á boltanum. Þess vegna borgum við fyrir "cable", og erum þess vegna með milljón vonlausar stöðvar og svo hina einu sem eitthvað er horft á: Fox Sports, eða hvort hún heitir Fox Soccer channel. (Þar sem ég horfi ekki á þetta sjálf er ég ekki viss og það gæti verið að þetta séu tvær íþróttastöðvar...). Fox sendir út helminginn af þeim enska. Svo til þess að ná restinni, þá erum við með internettengingu með mestu bandvídd sem boðið er upp á hér, og er hún tengd beint í kapalbox til þess að "við" náum restinni af boltanum á stöðinni Setanta Sports, en hún sendir út bæði í gegnum gervihnött og svo á netinu.

Nettengingin í gegnum skólann minn er býsna hröð, en hún er með takmarkað niðurhal á klukkutíma, þannig að við erum með tvær nettengingar, eina í gegnum skólann hjá mér svo ég hafi aðgang að öllum læstum gögnum á netinu og svo aðra frá Verizon fyrir boltann. Verizon er svo alveg saga út af fyrir sig, því þeir eru algerlega markaðsráðandi hér varðandi internettengingar og gera ekkert fyrir mann ef það kemur eitthvað uppá með sambandið hjá þeim. Jeij, samkeppni!

Við hefðum reyndar getað leyst þetta með því að fá okkur gervihnattamóttakara en málið er að við megum ekki setja þannig græju upp á þaki á þessum blessuðu "stúdentagörðum" hér.

Posted by erna at 03:42 EH
Þriðjudagur, 6 febrúar, 2007
..við fyrsta hanagal...

Ég vaknaði klukkan hálfsex í morgun og bara gat ekki sofið lengur. Sennilega af því að ég fór að sofa fyrir klukkan ellefu í gær. Ætli það sé satt að hver klukkutími sem maður sefur fyrir miðnætti jafnist á við tvo tíma eftir miðnætti. Alla vegana vaknaði ég hress og endurnærð við fyrsta hanagal og ákvað bara að drífa mig í vinnuna.

Það var þrettán stiga frost klukkan sex í morgun, en ekki sama rokið og í gær. Samt frekar kalt, sérstaklega í þessum raka hér. Mér finnst það reyndar bara hressandi, og fínt tækifæri til þess að nota loðhúfuna sem systir mín gaf mér í jólagjöf.

En ég varð bara að skrásetja þennan ótrúlega atburð að ég hafi vaknað svona spontant svona snemma, því það verður örugglega langt þartil það gerist aftur. Það erfiðasta sem ég geri á hverjum degi er að fara á fætur. Restin er bara rækjusamloka.

Posted by erna at 03:27 EH