Áður en ég flutti til Ameríku hélt ég að fákeppni væri eitthvað sem bundið væri við lítil lönd eins og Ísland. Og ég var minnt á þetta áðan þegar ég las færsluna hans Matta um samkeppnisaðstöðu Sýnar og Stöðvar 2 varðandi útsendingar á enska boltanum.
Þetta er hins vegar ekkert skárra hérna í landi kapítalismans. Hér eru tvær stöðvar sem skipta sirka jafnt á milli sín útseningum á boltanum. Þess vegna borgum við fyrir "cable", og erum þess vegna með milljón vonlausar stöðvar og svo hina einu sem eitthvað er horft á: Fox Sports, eða hvort hún heitir Fox Soccer channel. (Þar sem ég horfi ekki á þetta sjálf er ég ekki viss og það gæti verið að þetta séu tvær íþróttastöðvar...). Fox sendir út helminginn af þeim enska. Svo til þess að ná restinni, þá erum við með internettengingu með mestu bandvídd sem boðið er upp á hér, og er hún tengd beint í kapalbox til þess að "við" náum restinni af boltanum á stöðinni Setanta Sports, en hún sendir út bæði í gegnum gervihnött og svo á netinu.
Nettengingin í gegnum skólann minn er býsna hröð, en hún er með takmarkað niðurhal á klukkutíma, þannig að við erum með tvær nettengingar, eina í gegnum skólann hjá mér svo ég hafi aðgang að öllum læstum gögnum á netinu og svo aðra frá Verizon fyrir boltann. Verizon er svo alveg saga út af fyrir sig, því þeir eru algerlega markaðsráðandi hér varðandi internettengingar og gera ekkert fyrir mann ef það kemur eitthvað uppá með sambandið hjá þeim. Jeij, samkeppni!
Við hefðum reyndar getað leyst þetta með því að fá okkur gervihnattamóttakara en málið er að við megum ekki setja þannig græju upp á þaki á þessum blessuðu "stúdentagörðum" hér.