Ég sit hér og tjasla saman fyrirlestri um verkefnið mitt. Ég á að halda svokallað Micro-seminar á föstudaginn. Á íslensku myndi það nú sennilega útleggjast sem föstudagsfyrirlestur örverufræðideildarinnar. Þetta er klukkutíma fyrirlestur og er frekar formlegur, þannig að ég er með pínu fiðring í maganum yfir því. Sérstaklega af því að það eru allir á labbinu mínu í fríi á föstudaginn, þannig að ég verð eina manneskjan úr hópnum þarna. Ekki einu sinni prófessorinn minn mætir á svæðið, en hún verður í jarðarför.
Mér telst til að þetta verði í þrítugasta og þriðja skiptið sem ég held tölu um verkefnið mitt, en þá tel ég með fimmtán labbfundi. Þannig að manni ætti svosem ekki að vefjast tunga um tönn. Það má líka segja að þetta sé hálfgerð generalprufa fyrir doktorsvörnina. Ég bæti ekki miklu af gögnum við úr þessu þannig að fyrirlesturinn verður mjög svipaður þegar ég ver, hann verður bara styttri, 45 mínútur í stað klukkutíma og með meira kynningarefni. Þetta er því fínt, að vera búin að semja doktorsfyrirlesturinn svona vel fyrirfram. Þá getur maður bara leikið sér í að fínpússa hann í PowerPoint þegar þar að kemur!
Loksins komið nýtt ár! Og það ekkert annað en tvöþúsundogsjö með öllum sínum fyrirheitum.
Á þessu ári stefni ég á að verja doktorsritgerðina mína, (fyrst þarf ég nú reyndar að skrifa hana), og svo að fá vinnu í Evrópu sem nýdoktor (fyrst þarf ég nú reyndar að sækja um vinnu). Mörður stefnir á annað maraþon og saman stefnum við á það að flytja saman til Evrópu og kannski bara fara í frí saman, svona til tilbreytingar.
Árið 2006? Ég er eiginlega bara strax búin að gleyma því, samt stóðu nokkrir hlutir uppúr, aðallega þá gæsun á Flórída, brúðkaup Josh og Mel, steikjandi hiti í ágúst, Mo hljóp maraþon í nóvember og þá er það upp talið. Restin var bara vinna.