Miðvikudagur, 22 nóvember, 2006
Þakkargjörð

Framundan er Þakkargjörðarhátíðin hér í Bandaríkjum Norður Ameríku. (Já, bara í BNA, Canada heldur sína þakkargjörðarhátíð í október).

Stefnan er tekin á Pennsylvaniu annað árið í röð, en vinahópurin verður samankominn þar á heimili foreldra Melissu vinkonu. Við tökum tjaldið okkar með, maður sleppir engu tækifæri til að sofa í tjaldi þegar maður býr í stórborg. Eða eins og Melissa sagði við mig: "Ef veðrið verður hlýtt og gott getið þið bara komið inn og sofið þar, en ef það verður hroðalega kalt er ég viss um að þið viljið endilega vera úti..."

Við ætlum að þjófstarta hátíðinni með því að keyra uppeftir með Josh og Melissu seinnipartinn og fá okkur bjór og Pennsylvania Dutch kvöldmat í kvöld.

Á morgun verður svo maraþoneldamennska fyrir fimmtán manns, en á boðstólum verður grillað íslenskt lambakjöt með heimatilbúnu pestó, ásamt hefðbundnum þakkargjörðarmat, kalkún, sætum kartöflum, kartöflumús og félögum... Máltíðin hefst svo klukkan þrjú að hætti innfæddra og stendur framundir kvöld. Spurning um að mæta bara í joggingbuxum til að hafa pláss fyrir allar kræsingarnar innanborðs...

Posted by erna at 09:13 FH
Þriðjudagur, 21 nóvember, 2006
Hrossabjúgnastórborgarkerrudekk

Svona fyrir þá sem langar í stórborgarakerru; Kerran sem við keyptum um daginn (kerra nr. 3, við rústum þeim svo hratt), er með gúmmídekkjum sem anga eins og reykt hrossabjúgu. Sem er einmitt ilmurinn sem tekur á móti okkur þegar við komum heim. Dejligt, er det ikk'!

Posted by erna at 10:35 EH
Föstudagur, 17 nóvember, 2006
Lyftusamtal

Þetta samræðubrot heyrði ég í lyftunni í morgun:

Ónefndur Nóbelsverðlaunahafi við prófessor X: What time is it when it sayes 14:20?

Prófessor X (eftir smá hik): Hmm.. That's 2:20pm, I think.....

Sem betur fer var lyftan þá komin á tíundu hæð og Nóbelsverðlaunahafinn steig út úr lyftunni.

Posted by erna at 02:21 EH
Þriðjudagur, 14 nóvember, 2006
Eintóm gleði og hamingja

Það voru nokkrir hlutir sem glöddu mig í dag.

Fyrir það fyrsta, þá verður Jorge Cham í New York í næstu viku. Heldur tölu í New York Academy of Sciences. Mín að mæta þangað... (eh.. já, vonandi en svona plön fara oftast í vaskinn hjá mér þessa dagana).

Í öðru lagi sat ég á fyrirlestrum í allan dag. New York Skin club hittist nefnilega í dag. Við fengum voða fínan hádegismat í Faculty Club og ég lærði ótal marga nýja hluti.

Í þriðja lagi sagði fótasérfræðingurinn minn að hann myndi laga innleggin mín, mér að kostnaðarlausu. Og svo sendi hann mig í fótasegulómun. Tryggingafélagið mitt verður örugglega svaka ánægt.. önnur segulómunin á þremur mánuðum....

Í fjórða lagi. Ég gerði Western á frumunum frá því á laugardaginn og það var rétt hjá mér. Blimpið mitt var í frumunum það var bara ósýnilegt. Alltaf gott þegar maður heldur að sex vikna vinna sé farin í vaskinn en fattar svo að það sé ekki rétt....

Posted by erna at 05:54 EH
Mánudagur, 13 nóvember, 2006
Ó, mæ god

He did it again!
Enn og einu sinni nær Jorge Cham lífi mínu í hnotskurn. Dagurinn í dag hjá mér var nákvæmlega svona.
Ég fór á fætur, þóttist eiga líf með því að fá mér kaffi og fara út í búð að versla í matinn með Merði (með Njúf Jorkera kerruna okkar já!) og kom heim og dundaði mér við að elda (ugh.. hafragrautsrísottó, mæli ekki með því), reyndi að sofna og gat það ekki og fór á netið að leysa vandamál....

Posted by erna at 01:39 FH
Er til líf utan labbsins?

Vá hvað ég er hissa á að það er enn fólk að kíkja á þessa síðu! (Já, Ella Maja, þú færð hér með tilnefninguna bjartsýnasti lesandi þessa bloggs... að minnsta kosti koma flestir á þetta blogg af þinni síðu þessa dagana og ég giska á að það sért þú!)

Ég er eiginlega líka hissa á að ég eigi ennþá vini, eiginmann og að fjölskyldan sé ekki endanlega búin að afneita mér. Ég er nefnilega ekki búin að sinna neinu nema vinnunni undanfarið ár eða svo.

Og hér sit ég nú, eina ferðina enn, og gúggla frá mér vitið. Ég vissi nefnilega að ég gæti ekki sofnað fyrr en ég vissi hvað hefði klikkað í tilraun laugardagsins. Og loksins, loksins, lagði ég saman tvo og tvo. Flúrljómun GFP er nefnilega háð sýrustigi krakkar mínir. Og tilraunin er ekkert ónýt, frumusortarinn hélt það bara af því að GFPið var orðið ósýnilegt.

Svona er líf mitt, snýst ekki um neitt annað en nördaskap. Ég skulda þeim sem fann upp fluguhnýtingar þakkir fyrir að sjá Merði fyrir afþreyingu undanfarin misseri. Og að ekki sé minnst á hann Pheidippides. Honum sendi ég ómældar þakkir yfir móðuna miklu, fyrir að stuðla að útihlaupum Marðar í allt sumar. Það minnkaði nefnilega verulega vinnusamviskubitið á sunnudögum ef ég vissi að Mörður yrði úti að hlaupa allan daginn...

En nú er kallinn búinn að hlaupa Maraþonið og ár í það næsta, þannig að það er ekki seinna vænna fyrir mig að fara að hespa þessarri grein af.

Eitt er samt nokkuð ljóst, ég ætla ekki að vinna á jólunum.

ps. Það er kominn háttatími þegar mánudagsmogginn er kominn á netið...

Posted by erna at 01:16 FH