Framundan er Þakkargjörðarhátíðin hér í Bandaríkjum Norður Ameríku. (Já, bara í BNA, Canada heldur sína þakkargjörðarhátíð í október).
Stefnan er tekin á Pennsylvaniu annað árið í röð, en vinahópurin verður samankominn þar á heimili foreldra Melissu vinkonu. Við tökum tjaldið okkar með, maður sleppir engu tækifæri til að sofa í tjaldi þegar maður býr í stórborg. Eða eins og Melissa sagði við mig: "Ef veðrið verður hlýtt og gott getið þið bara komið inn og sofið þar, en ef það verður hroðalega kalt er ég viss um að þið viljið endilega vera úti..."
Við ætlum að þjófstarta hátíðinni með því að keyra uppeftir með Josh og Melissu seinnipartinn og fá okkur bjór og Pennsylvania Dutch kvöldmat í kvöld.
Á morgun verður svo maraþoneldamennska fyrir fimmtán manns, en á boðstólum verður grillað íslenskt lambakjöt með heimatilbúnu pestó, ásamt hefðbundnum þakkargjörðarmat, kalkún, sætum kartöflum, kartöflumús og félögum... Máltíðin hefst svo klukkan þrjú að hætti innfæddra og stendur framundir kvöld. Spurning um að mæta bara í joggingbuxum til að hafa pláss fyrir allar kræsingarnar innanborðs...