Mánudagur, 11 september, 2006
Til Minningar

Æ, ég er pínu sorgmædd í dag, ég verð að viðurkenna það. Það var einmitt myndasaga í ókeypis-dagblaðinu sem maður fær í söbbvei í dag sem nær því eiginlega hvernig mér líður.

Það voru tveir menn að labba saman og annar þeirra lýsti því yfir að hann væri búinn að ná sér andlega eftir árásirnar. Nema að í hvert skipti sem það flýgur flugvél yfir athugi hann hvort það sé ekki örugglega allt í lagi. Maður er hættur að kasta sér í gólfið þegar það fljúga yfir flugvélar, en mér varð samt ekki um sel þegar það var flugsýning yfir borginni í sumar og það sveimuðu flugvélar um á lágflugi. "Too close for comfort" var fyrirsögnin í New York Times daginn eftir.

Maður er svosem ekkert að velta þessum árásum neitt fyrir sér lengur, en það koma svona augnablik sem sýna manni að Al Qaeda tókst að breyta fyrir manni heiminum.

ps. Ég ætla ekki einu sinni að reyna að kveikja á sjónvarpinu í kvöld.

Posted by erna at 09:06 EH