Miðvikudagur, 6 september, 2006
Magnað

Jæja, maður getur nú ekki verið Eiðanemi (eitt sinn Eiðanemi, ávallt Eiðanemi) nema að kjósa hann Magna svona eins og fimmtíu sinnum. Ætli það geti valdið heilaskemmdum að lesa þennan illlæsa kóða sem maður er látinn stimpla inn við hvert atkvæði?

Við horfðum á Rockstar í fyrsta skipti í gær, hafði til dæmis ekki hugmynd um á hvaða stöð þátturinn var. Á þessum bænum er sjónvarpið ávallt stillt á fótbolta, en CBS sýnir ekki mikið af honum.

Það er líka gaman að segja fólki frá því að sumir skólar hafi gefið frí á Íslandi svo fólk gæti vakað frameftir og kosið Magna.

Og ég er búin að stilla á upptöku í kvöld þannig að ég geti horft á úrslitin þegar ég kem heim.

Posted by erna at 09:40 FH