Jæja, það kólnaði á fimmtudagskvöldið. Á næstunni verða bara þessar standard 30°C. Loftkælingin á labbinu ætti að ráða við það.
Við skelltum okkur á tónleika á Summer Stage í Central Park á Fimmtudagskvöldið. Hljómsveitirnar The Frames, Calexico og The New Pornographers léku fyrir dansi og var það bara nokkuð nett. Ég varð reyndar fyrir smá vonbrigðum með Calexico, þeir voru greinilega ekki í sínu besta formi, en The Frames stóðu fyrir sínu. Við fórum eftir tvö lög hjá The New Pornographers, erum orðin of gömul fyrir svona popp held ég bara... (af því að ég var alltaf svo mikill poppari framan af, sko eða þannig).
Ég sá líka á dagskránni sem okkur var afhent að enginn annar en Talvin Singh verður með tónleika á Summerstage eftir viku, indverskt þema og næsheit. Og ókeypis í þokkabót. Mér hlakkar til...