Fimmtudagur, 3 ágúst, 2006
ÚÚÚÚffffffffffffff

Byggingin sem ég vinn í er ekki búin nútíma loftkælingu. Það er að segja, þar er bara hitaskiptikerfi þar sem kaldar pípur liggja um loftræstikerfið og kæla loftið, en alvöru loftkælingar þétta líka raka úr loftinu. Því er ekki að heilsa í Amand Hammer Health Sciences byggingu Kólumbíuháskóla og höfum við mátt finna fyrir því undanfarið.

Hitinn á labbinu var um 28-30°C í allan dag, en það sem verra var er að það var svo rakt að það var varla vinnandi þar. Fyrir það fyrsta þéttist rakinn á öllum tilraunaglösum (nær öllum lífsýnum sem ég er að vinna með er haldið köldum á ís) og ekki auðvelt um vik að sjá innihaldið. Í öðru lagi fóru allir hitaskáparnir í vefjaræktinni að ofhitna og þar að auki þiðnaði allt í nokkrum -20° fyrstum hjá okkur. -80°C frystarnir hafa þó haldist kaldir, og músaherbergið hefur forgang að kalda loftinu. Count your blessings....

Hitabylgjan sem nú hefur gengið yfir er víst algert met frá upphafi mælinga og þess vegna lýsti borgarstjórinn okkar hann Blúmberg, yfir neyðarástandi. Þar af leiðandi skipti Kólumbíuháskóli öllu sem hægt var af rafmagni frá Con Edison yfir á vararafala, með ofangreindum afleiðingum. Con Edison er apparatið sem á að halda rafmagni á borginni og gengur það misvel. Um daginn var til dæmis rafmagnslaust úti í Queens í 10 daga og það tók tvo daga fyrir fyrirtækið að keyra um hverfið á kvöldin og tékka á því hvar væru kveikt ljós til þess að meta hversu útbreitt rafmagnsleysið væri. Frábært apparat semsagt!

Og á meðan fáum við að grillast við vinnuna á labbinu. Og þar sem stórborgir búa yfir þeim eiginleika að kólna ekki á kvöldinn er líka grillhiti alla nótina, fer varla niður fyrir 33°C og hitaindexið á daginn er um 46°C. Sveitt stemning sumsé! En sem betur fer á að kólna á Föstudaginn, það verða rétt svo 32°C og 55% loftraki, maður ætti bara kannski að draga fram dúnúlpuna...

Posted by erna at 12:30 FH