Jæja, enn einn labbfundurinn afstaðinn, húrra fyrir því. Ég er þreytt og nenni ekki neinu og blogga því bara andlaust blogg.
Ég heyrði í Merði í fimm mínútur í dag, en hann tímdi ekki að tala við mig lengur það er svo dýrt að vera með millilandaGSMfrelsi víst. Svona er ástin nú blind eftir fimm ára hjónaband!
Mér leiðist pínu að vera ein í kotinu. Frekar tómlegt. En á meðan fæ ég útrás fyriri tilhneigingu mína til áráttuhegðunar. Það er ekki búið að vera svo mikið sem eitt pappríssnifsi á röngum stað í íbúðinni undanfarna daga, allt voða puntað og fínt, nema, jógamottan á sínum stað fyrir framan sjónvarpið, búið um rúmið á hverjum morgni og svo framvegis.... En mikið væri ömurlegt ef ég væri einhleyp, því ég sé þessa hegðun alveg fyrir mér leiða til óskapa, ég yrði alger Mrs. Bean á endanum!