Ég svaf ekkert í nótt, sofnaði ekki fyrr en eftir klukkan fjögur. Klukkan sex hringdi svo síminn minn og ég rauk fram alveg rugluð, hélt náttúrulega að eitthvað alvarlegt hefði komið fyrir og lífið lægi á. Náði ekki að svara, en það voru skilaboð í talhófinu mínu að einhver David hafði sagt viðkomand að tékka hvort ég væri tilbúin. Frábært. Fólk sem tékkar ekki hvort það sé örugglega með rétt símanúmer ef það þarf að hringja í einhvern klukkan sex á morgnana er fíbbl.
Ég mætti því ekki fyrr en mjög seint, klukkan tólf, og er frekar framlág. Hins vegar virðist loksins sem ég sé að fá einhver gögn í verkefninu mínu svo ég er bjartsýn!
Nú er bara að klára þessa tilraun sem ég er að gera og drífa sig svo að búa til labbfund. Ekkert mál fyrir Jón Pál....