Fimmtudagur, 22 júní, 2006
Kayak

Harry setti inn myndir frá kayakferð sunnudagsins. Gvuð hvað við tökum okkur öll vel út!

Posted by erna at 12:21 EH
Hjónavíxluafmæli

Í dag erum við Mörður búin að vera gift í 1826 daga. Í tilefni þess ætlar Mörður að koma og hjálpa mér að pípettera á labbinu til að geta varið deginum með mér... Nei djóóóók!

Við ætlum bæði að hætta snemma að vinna og gera eitthvað skemmtilegt saman, en við erum ekki búin að ákveða hvað, möguleikarnir á skemmtilegheitum eru óendanlegir hér í borg, þannig að við finnum örugglega eitthvað út úr því!

Eftir tvo daga er svo brúðkaup Josh og Melissu uppi í Pennsylvaníu. Það verður æðislegt að fara þangað, gestirnir tjalda í garðinum hjá foreldrum Melissu og svo verða þau pússuð saman og heljarinnar tveggja daga garðveisla haldin með varðeldi, söngvum og gleði. Ég er búin að hlakka til í nokkra mánuði!

Posted by erna at 11:00 FH
Laugardagur, 17 júní, 2006
Stelpuferð til Flórída

Við náðum fyrsta fellibyl ársins á Flórída. Alberto fór vel með okkur. Gæsun ársins. Stelpuferð, flissferð, stuðferð. Við lékum okkur í öldunum og skoðuðum fugla og krókódíla og notuðum blenderinn á hótelinu til hins ýtrasta. Allt á bara þremur dögum... Myndir hér.

Posted by erna at 01:37 FH