Ásta systir gaf mér WebCam í síðustu viku. Ógisslega kúl! Nú getið þið séð mig á MSNinu í eiginlegri merkingu þess orðs ;) Tók dótið með mér í vinnuna. Ekki slæmt!
Þegar ég kom þreytt og slæpt heim af labbinu í gær biðu mín súrir hrútspúngar, sviðasulta og hvalspik. Það þarf kannski ekki að taka það fram að pabbi, Björg og Ingi eru í heimsókn. Ég öfundaði þau ekkert af því að hafa farið út að borða, var bara himinsæl með minn pung og mitt spek. Nú er bara að finna mysu til þess að koma þessu aftur í súr.
Það kom svipur á labbfélagana í síðustu viku þegar ég sagði þeim að pabbi minn væri að koma með "pickled ram testicles" handa mér. Púngapikkles. Geri aðrir betur.
Ég myndi nú lýsa mér frekar sem "agnostic" en lýsingin fyrir neðan passar nú samt vel. Internetið veit allt um mig...
| You are an Atheist |
![]() You prefer to think about what's known and proven. You don't need religion to solve life's problems. Instead, you tend to work things out with logic and philosophy. |
Jahá... hef sko ekkert skemmilegt að segja þannig að ég stal þessu kvissi frá Herbie.........