Þriðjudagur, 11 apríl, 2006
Ég fékk púng

Þegar ég kom þreytt og slæpt heim af labbinu í gær biðu mín súrir hrútspúngar, sviðasulta og hvalspik. Það þarf kannski ekki að taka það fram að pabbi, Björg og Ingi eru í heimsókn. Ég öfundaði þau ekkert af því að hafa farið út að borða, var bara himinsæl með minn pung og mitt spek. Nú er bara að finna mysu til þess að koma þessu aftur í súr.

Það kom svipur á labbfélagana í síðustu viku þegar ég sagði þeim að pabbi minn væri að koma með "pickled ram testicles" handa mér. Púngapikkles. Geri aðrir betur.

Posted by erna at 07:48 FH