Miðvikudagur, 29 mars, 2006
Sjíminn bjilaður

Ésús hvað ég er háð símanum mínum! Hann er bara dáinn þessi elska og ég er bara búin að eiga hann í mánuð. Það næst því ekki í mig í síma....

Öppdeit: Búin að laga símann. Smá skonserí í gangi =)

Posted by erna at 01:29 EH
Föstudagur, 24 mars, 2006
Sjúkkulaði

Oh.. er hér að innbyrða hinn guðdómlega kokkteil, súkkulaðiköku og kaffi. Ég tók sko afganginn af afmæliskökunni hans Mo með mér á labbið í dag. Ekki slæmt.

Ég er sammála Nönnu með hugtakið deadline. En ég er nú búin að missa af mínu hvort sem er, ég verð ekki komin með neinar niðurstöður þann 9. apríl. En þetta er allt í áttina, þannig að kannski næ ég þessu einhvern tíma í apríl.

Um helgina er massa tölvuvinna framundan, og svo verður kýlt á labbvinnuna frá og með sunnudagseftirmiðdegi. Hver mínúta fyrirfram skipulögð svo ekki fari neitt í klessu........ ójá

Posted by erna at 03:30 EH
Þriðjudagur, 21 mars, 2006
JJJJÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS

Í morgun bölvaði ég vísindunum í sand og ösku. Ég er að verða veik (Mo er sko búinn að vera heima lasinn í tvo daga og ég held að ég hafi smitast...), og ég var ekki mjög hress.

Þessa stundina eru vísindin hins vegar alveg svakalega góð við mig, því að tilrauninrnar mínar eru farnar að virka. Ég var að fá niðurstöðurnar úr tilraun sem ég byrjaði á á fimmtudaginn og þær eru líka svona svakalega bjútífúl! Þokkalega nett tilfinning að hafa fundið út úr þessu öllu saman =)

Og þá er það bara að rúlla upp ermarnar og undirbúa labbfund.

Posted by erna at 06:05 EH
Mánudagur, 20 mars, 2006
URRRRRRRRRRRR.....

Það er eins gott að mér finnist gaman að vinnunni minni, því þessa dagana geri ég lítið annað en að vinna. (And what else is new?).
Undanfarnar fimm til sex vikur er ég búin að endurtaka sömu tilraunina tíu sinnum. Hver tilraun tekur um viku í framkvæmd. Ég er búin að gera eins mörg afbrigði af þessari tilraun eins og unnt er að ímynda sér: Með einangruðum frumukjörnum, með heilum frumuextröktum, með hálftíma X-linking, með tíu mínútna X-linking, með fimm ómtvístrunarskorpum, með tíu ómtvístrunarskorpum með fimmtán ómtvístrunarskorpum, með öllum mismunandi jákvæðum og neikvæðum kontrólum sem hugsast getur og margfeldinu af þessu öllu saman.

Og ég er enn á byrjunarreit. Í dag er ég að byrja aftur og ætla að gera sömu tilraun og þá sem ég gerði í janúar, en með frumum sem voru settar í fljótandi köfnunarefni árið 1986. Sumsé ferskar og góðar, ekkert búið að hjakkast á þeim í endalausri frumurækt.

Mig vantar pípetteringarþræl, áður en hægri höndin dettur af mér. Hér á slóðum þekkjast ekki mjúltípípettur. Svona fansí stöff eins og maður notar ef maður vinnur hjá líftæknifyrirtæki. Ég er því búin útbúa raðþynningar af átján sýnum í dag, samtals sjötíuogtvö sýni. Síðan er ég búin að pípettera hverju þessara sýna fjórum sinnum, skammta PCR sýnum í fjórum sinnum sjötíuogtvær PCR túpur og hlaða á gel fjórum sinnum sjötíu og tveimur PCR afurðum.

Einu sinni kunni ég á róbót sem gerði svona lagað fyrir mann.....

Posted by erna at 06:25 EH
Miðvikudagur, 8 mars, 2006
Banff kvikmyndahátíðin

Jæja, ætli það sé ekki best að blogga smá. Það er að segja ef einhver les þetta blogg ennþá. Sjaldan bloggað og þá um eitthvað tilraunasull. Ég á mér ekkert líf þessa dagana...

Við skelltum okkur á Banff kvikmyndahátíðina í gær og í fyrradag og sáum fjöldan allan af frábærum útivistarstuttmyndum. Í gær vildi líka svo skemmtilega til að ég keypti miða í happdrættinu sem er alltaf í hléi, og eitthvað hefur gleymst að stokka upp í miðakassanum því að ég vann á 3 miða af 7, tvær bækur um gönguleiðir í New York (Long Island walkbook og Catskills Walkbook), inneignarnótu í Paragon Sports og svo svefnpoka. Ég var eiginlega orðin skömmustuleg við síðasta vinninginn, manni leið eiginlega eins og maður hefði svindlað!

En myndirnar voru frábærar, í einu orði sagt. Ég sá svo eftir því að hafa bara mætt annað kvöldið í fyrra, þannig að ég var mætt eldsnemma í vinnuna báða dagana, til þess að komast, og meira að segja rétt marði það í gær þar sem það átti að loka dyrunum á nefið á mér, en ég komst inn.

Í ár verða myndirnar sýndar á Íslandi, Alpaklúbburinn stendur fyrir því. Ekki missa af því!

Næstu vikur verður þemað svo áfram bara vinna, éta, sofa. Vonandi fer þessi vinna að skila árangri, ég verð bara að segja það....

Posted by erna at 10:00 FH