Jæja, ætli það sé ekki best að blogga smá. Það er að segja ef einhver les þetta blogg ennþá. Sjaldan bloggað og þá um eitthvað tilraunasull. Ég á mér ekkert líf þessa dagana...
Við skelltum okkur á Banff kvikmyndahátíðina í gær og í fyrradag og sáum fjöldan allan af frábærum útivistarstuttmyndum. Í gær vildi líka svo skemmtilega til að ég keypti miða í happdrættinu sem er alltaf í hléi, og eitthvað hefur gleymst að stokka upp í miðakassanum því að ég vann á 3 miða af 7, tvær bækur um gönguleiðir í New York (Long Island walkbook og Catskills Walkbook), inneignarnótu í Paragon Sports og svo svefnpoka. Ég var eiginlega orðin skömmustuleg við síðasta vinninginn, manni leið eiginlega eins og maður hefði svindlað!
En myndirnar voru frábærar, í einu orði sagt. Ég sá svo eftir því að hafa bara mætt annað kvöldið í fyrra, þannig að ég var mætt eldsnemma í vinnuna báða dagana, til þess að komast, og meira að segja rétt marði það í gær þar sem það átti að loka dyrunum á nefið á mér, en ég komst inn.
Í ár verða myndirnar sýndar á Íslandi, Alpaklúbburinn stendur fyrir því. Ekki missa af því!
Næstu vikur verður þemað svo áfram bara vinna, éta, sofa. Vonandi fer þessi vinna að skila árangri, ég verð bara að segja það....