Við hjónin erum búin að vera í heilsuátaki undanfarnar vikur. Við erum með svo hreina samvisku hvað varðar mataræði að það mætti halda að hún hefði verið skrúbbuð upp úr Oxyclean. Trefjainnihald innbyrtrar fæðu hefur rokið upp úr öllu valdi og eiginþyngd fjölskyldumeðlima mjakast rólega niður í takt við það.
Mörður er líka kominn í svo gott form, farinn að hlaupa 8 mínútna mílur og skella sér einn hring um Miðgarð án þess að blása úr nös. Ef þetta heldur svona áfram á hann eftir að hlaupa maraþonið í nóvember á ljóshraða.
Það eina sem skyggir á heilsufar fjölskyldunnar eru hin óendanlegu bakheilkenni húsmóðurinnar. En það á víst að teipa mig í fastar skorður í næstu viku, þannig að kannski get ég fljótlega farið að stunda meira en bara hugarleikfimi á næstunni....