Fimmtudagur, 16 febrúar, 2006
On Food and Cooking

Oh.. það er eitthvað undið upp á mig núna... (Úff, og ég er hætt að hugsa á Íslensku, þvílíkur hryllingur sem kemur upp úr mér!). Ég get ekki sofið, í huga mér ríkir sirkusdans sameinda sem taka kollhnísa og dansa saman, inn og út úr frumukjarnanum, vefja um sig kjarnsýrum og sleppa þeim aftur, skutlast um og drepa á endanum frumur. Sannkölluð frumu-kaleidóskóp.

Til þess að róa mig niður sit ég hér og les bókina On Food and Cooking, eftir Harold McGee. Sú bók er alger snilld, því hún sameinar líffræðinginn í mér, efnafræðinginn og sælkerann. Í henni eru að finna efnaformúlur (t.d. oxunarástand járns og járnkomplexar (jáh.. komplexar, svo yndislegt) í samhengi við litabreytingu á kjöti við steikingu) þversnið af hinum og þessum vefjum dýra og plantna og kaflar meið heitum eins og "Electrical Imalance, Reactions, and Oxidation". Þvílík endemis snilld! Það er meira að segja útskýring á atómstrúktúr, reyndar ekki skammtafræðileg, en á öllu eru nú takmörk. Heisenberg er kannski ekki það hjálplegur við eldamennskuna, eða félagi hans Schrödinger. Nema kannski ef það er köttur í kassa í matinn.

Posted by erna at 12:47 FH