Ég fékk greinina mína til baka úr ritrýni á föstudaginn. Allir ritrýnendurnir vildu sama hlutinn, sem er tilraunin sem ég er búin að vera að optimísera í mánuð. Undanfarnir dagar eru því búnir að vera spennuþrungnir. Ég hef tvo mánuði til þess að klára þessar tilraunir. Það hljómar sennilega sem langur tími í eyrum þeirra sem eru ekki sameindalíffræðingar, en trúið mér, í þessu samhengi eru þúsund ár sem dagur, ei meir.
En ritrýnendurnir voru góðir við mig, fannst greinin góð og voru í alla staði mjög jákvæðir, þannig að ég er bjartsýn, en stressuð. Ég held labbfund á morgun og svo er það bara að rúlla upp á ermarnar og kýláetta.