Það er ekki laust við að það sé smá þynnka í gangi á þessum bænum í dag, en bara smá.
Stelpurnar komu í heimsókn í gær, ég hef ekki séð þær allar saman svo lengi og það var svo gaman að sjá þær! Við höfum ekki hittst allar síðan í byrjun janúar.
Í matinn var plokkfiskur að hætti Freyju og rúgbrauð með mysingi eða smjöri, eftir smekk. Ég var nefnilega svo dugleg að baka rúgbrauð á miðvikudaginn og fann norskan geita-ost úti í Fairway í gær. Og það vill svo skemmtilega til að hann bragðast alveg nákvæmlega eins og mysingur. Við sötruðum hvítvín með (þessvegna þynnkan) og borðuðum feta-salat og slúðruðum. Helen kom svo með guðdómlegan eftirrétt, rasberry-crumble, upp á útlensku og við slúðruðum meira og borðuðum ís með.
Og þær gáfu mér afmælisgjöf, sem er inneign á Spa niðri í bæ í andlitsbað og handsnyrtingu. Við Melissa ætlum saman þangað og láta fara með okkur eins og prinsessur. Ohhh... ég þarf svo sannarlega á því að halda...